Tíska og hönnun

Rappari í leðurpilsi – er það nýjasta tískan?

MYNDIR / COVER MEDIA
Það má með sanni segja að rapparinn Kanye West hafi stolið senunni á tónleikum til styrktar fórnarlömbum fellibylsins Sandy. Hann skemmti áhorfendum eins og honum einum er lagið í reffilegu leðurpilsi.

Þetta pils er ekki hvaða pils sem er heldur kemur það úr smiðju tískurisans Givenchy. Við það var Kanye í leggings og hefur þetta dress vakið upp mikla umræðu á netinu og verið efniviður í þónokkrar skrýtlur um tónlistarmanninn.

Bara í gallabuxum þarna.
"Nýtt í Kardashian-línunni?" "Kanye hlýtur að hafa skipst á ferðatösku við Kim Kardashian," eru dæmi um brandara sem hafa gengið á Twitter um pilsið fræga en Kanye er sem þekkt er kærasti Kim Kardashian.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.