Tíska og hönnun

Er þessi ekki aðeins of gagnsær?

MYNDIR / COVER MEDIA
Söngkonan Ellie Goulding reyndi sem hún gat að stela senunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Les Misérables í London á miðvikudagskvöldið.

Ellie virtist vera sama um að þetta væri einn kaldasti dagur ársins og klæddist hvítum kjól sem var ansi hreint gagnsær. Til að toppa allt var hún ekki í brjóstahaldara en í svörtum nærbuxum sem allir gátu séð.

Hún felur ekki mikið í þessum!
Ellie náði samt að púlla þetta lúkk ágætlega en vonandi hefur hún ekki vaknað næsta dag með kvef og hálsbólgu, blessunin.

Halló nærbuxur!
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.