Sumarið gaf 25.009 silunga 23. október 2012 13:06 Haukur Böðvarsson með metfisk sumarsins úr Grænavatni. Fiskurinn er reyndar sá stærsti sem veiðst hefur í vötnunum Bryndís Magnúsdóttir
Á netaveiðitímanum í Veiðivötnum veiddust 4.715 fiskar í net og 647 fiskar á stöng, en hvort tveggja er heldur minni afli en í fyrra. Á veidivotn.is segir frá því að sumarið og haustið 2012 veiddust því alls 25.009 fiskar í Veiðivötnum. Þetta er nokkru minni veiði en undanfarin ár, en mjög gott miðað við síðustu áratugi (sjá samanburð á heildarveiði). Stangveiði í Veiðivötnum lauk 22. ágúst. Á stangveiðitímanum veiddust 19.647 fiskar sem er nokkru minni veiði en sumarið 2011, en þá fengust 21.240 fiskar. (sjá samanburð). Meðalþyngdin var aftur á móti betri en þá eða tæp tvö pund. Þetta er mesta meðalþyngd sem mælst hefur í Veiðivötnum frá árinu 2002 (sjá samanburð). Mest var meðalþyngdin í Grænavatni 4.54 pund. Þar veiddist einnig stærsti fiskur sumarsins 16.4 pund. Lang mest veiddist í Litlasjó á veiðitímabilinu. Alls komu 7.795 fiskar þar á land og þar af fengust 6.298 fiskar á stöng. svavar@frettabladid.isMynd/Haukur
Stangveiði Mest lesið Heildarveiðin í Veiðivötnum komin í 9712 fiska Veiði Stóra Laxá að ná 400 löxum Veiði Tungufljótsdeilan til lykta leidd Veiði Góð fyrsta vika í veiðivötnum Veiði Erindi um stíflur og áhrif þeirra Veiði Hálendisveiðin gengur vel Veiði Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum Veiði Opin fyrirlestur um hreindýraveiðar Veiði Finnskt hugvit bjargar ljósmyndum af smálöxum Veiði Tímabilið byrjar bara ágætlega Veiði