Uppskriftin í dag er bakaður lax frá Lifandi markað sem opnaði á dögunum glæsilega verslun og veitingastað í Fákafeni 11 í Reykjavík. Þar má finna breiðasta úrval lífrænna vara sem í boði er á Íslandi en þar er að finna stóraukið úrval af ferskvöru, eins og grænmeti, ávöxtum, kjöti, fiski og brauði. Þar að auki er veitingastaður, sem sérhæfir sig í gómsætum, hollum réttum, og fyrsta flokks lífrænt kaffihús á staðnum.
Bakaður lax í appelsínu-soyjasósu
Fyrir fjóra - eldunartíminn er minna en 60 mínútur.
4 msk tamarisósa
11/2 glas af appelsínusafa og smá rifinn appelsínubörkur
ferskur engifer 2 cm rifinn
1 hvítlauksgeiri marin og saxaður
4 stk saxaður vorrúllur
appelsína 1 stk skorin í þunnar sneiðar
líka af spínati eða rucola á hvern disk
Hita ofninn í 200 °
Blanda saman tamarisósu, appelsínuberki og safanum, svo er ráðlagt að rífa niður og kreista engiferinn, hvítlaukinn og vorlaukinn. Leggja laxinn í ofnfast form og hella mixtúru yfir. Geymist síðan í ísskáp í 30 mínútur.
Þegar laxinn er tilbúinn þá er gott að setja appelsínusneiðarnar yfir fiskinn og baka í ofni í 10-15 mínútur. Mjög gott með salati.

Það var Leifur Welding sem sá um útlitsbreytinguna í samvinnu við Lifandi markað í Fákafeni og útkoman er mjög goð eins og sést á myndunum. Útlit staðarins mun koma flestum á óvart en það er gjörólíkt því sem Íslendingar hafa vanist á matvörumarkaði og er meira í takt við það sem gerist erlendis.


