Tíska og hönnun

Bomba í bleiku

MYNDIR / COVER MEDIA
Bjútíbomban Jennifer Lopez vakti verðskuldaða athygli á tískuvikunni í París í gær þegar hún kíkti á vor- og sumarlínu Valentino.

Jennifer var í sjúklega flottum bleikum kjól og bauð kærasta sínum, Casper Smart, með á herlegheitin. Parið sat við hliðin á sjálfum hönnuðinum Valentino Garavani. Ekki slæmt!

Fyrr um daginn bauð Jennifer dóttur sinni Emme með á Chanel-tískusýningu. Það er greinilegt að Jennifer ætlar ekki að láta neitt framhjá sér fara í París.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.