Gagnrýni

Ferskur andblær

Trausti Júlíusson skrifar
Ojba Rasta er ellefu manna hljómsveit sem spilar reggítónlist. Íslendingar voru lengi að ná áttum í reggíinu. Eftir að Hjálmar sýndu að það er ekkert sjálfsagðara en að spila reggí á Íslandi hefur þeim fjölgað ört sem fást við þessa tegund tónlistar hér á landi.

Ojba Rasta vakti verulega athygli þegar sveitin sendi frá sér lagið Baldursbrá í vor. Það náði vinsældum á útvarpsstöðvunum, enda frábært lag, texti og útsetning. Eitt af lögum ársins. Hljómsveitin er líka þekkt fyrir skemmtilega framgöngu á tónleikum undanfarin misseri og nú er fyrsta platan komin út, samnefnd sveitinni.

Það eru átta lög á Ojba Rasta-plötunni og þau eru öll góð, þó að ekkert slái smellinum Baldursbrá við. Nokkrum laganna svipar til Baldursbrár, en önnur eru ólík, t.d. instrúmental döbb-lagið Sólstöður og lokalagið, Í ljósaskiptunum, sem byrjar á rappi en þróast svo yfir í döbb. Bæði mjög góð lög.

Textarnir eru yfir það heila ágætir. Flest lög og texta á Arnljótur Sigurðsson, en Teitur Magnússon er líka atkvæðamikill. Allir textarnir eru á íslensku, nema einn, við lagið Jolly Good. Hann er áberandi lakastur. Þetta er vel unnin plata; hljómurinn er flottur og umslagið er frábært, litríkt og líflegt og fullt af skemmtilegum tilvísunum.

Á heildina litið er þessi fyrsta plata Ojba Rasta mjög vel heppnuð. Flott lög og textar og frísklegar útsetningar. Hún kemur eins og ferskur andblær inn í íslenskt tónlistarlíf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.