Fótbolti

Þóra Helga með bólgna tá eftir klaufalegt atvik

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stuðboltarnir Sif Atladóttir og Þóra Björg Helgadóttir.
Stuðboltarnir Sif Atladóttir og Þóra Björg Helgadóttir. Mynd / Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Búlgaríu í undankeppni Evrópumótsins ytra í dag klukkan 15 að íslenskum tíma. Byrjunarliðið verður tilkynnt einum og hálfum tíma fyrr.

Fróðlegt verður að sjá hvort Sigurður Ragnar geri breytingar frá liðinu sem lagði Ungverja 3-0 á Laugardalsvelli á laugardaginn var. Katrín Ómarsdóttir átti afar fína innkomu á miðjuna fyrir Eddu Garðarsdóttur gegn Ungverjum auk þess sem Sandra María Jessen skoraði með sinni fyrstu snertingu.

„Allir varamennirnir sem komu inn á stóðu sig vel. Katrín lagði upp mark og Sandra María skoraði. Allar stelpurnar sem voru fyrir utan eiga líka heima í byrjunarliðinu. Það er gott að hafa alla þessa möguleika," segir Sigurður Ragnar.

„Ég var ánægður með Eddu í síðasta leik en vildi gefa Katrínu Ómars tækifæri sem hafði verið mjög góð á æfingunum. Við sjáum þessar stelpur sem spila úti svo sjaldan að það var mikilvægt að sjá þær með landsliðinu. Katrín hefði allt eins getað verið í byrjunarliðinu. Hún hafði staðið sig vel á æfingum og ég er mjög hrifinn af henni," segir Sigurður Ragnar sem liggur fyrst og fremst áherslu á sigur en Búlgarir töpuðu síðasta leik sínum gegn Noregi 11-0.

„Við gerum kröfu til okkar að vinna þennan leik. Það er samt ekki úrslitaatriði að vinna þær 12-0 af því að Noregur vann þær 11-0. Það er mjög ólíklegt að það reyni á markatölu í þessum riðli," segir Sigurður Ragnar og bendir á hve miklu máli heimavöllurinn skipti.

„Það sést best á úrslitum búlgarska liðsins. Búlgarir töpuðu 11-0 í Noregi en bara 3-0 hérna í Búlgaríu þar sem Noregur skoraði tvö mörk í viðbótartíma. Bæði Norður-Írland og Belgía unnu bara 1-0 og Danir gerðu markalaust jafntefli í síðustu undankeppni."

Allir leikmenn íslenska liðsins eru klárir í slaginn. Hólmfríður Magnúsdóttir kveinkaði sér aðeins í sköflungi á æfingunni í gær en Sigurður Ragnar telur að hún verði klár.

Sigurður Ragnar hafði hins vegar kostulega sögu að segja af markverði liðsins Þóru Björgu Helgadóttur.

„Við vorum að ganga inn í búningsklefann fyrir æfinguna. Þóra Helga var á inniskóm og dúndraði tánni framan á þröskuldinn og er að drepast í tánni. Það gæti verið að við þyrftum að deyfa hana á morgun því táin er bólgin. Þetta er frekar klaufalegt en við hlógum bara að þessu," segir Sigurður Ragnar sem telur að Þóra verði ekki í vandræðum með útspörk sín og markspyrnur í dag.

Þóra birti í gærkvöldi mynd af bólgnu tánni. Hana má sjá hér.

Leikur Búlgaríu og Íslands hefst klukkan 15. Hægt er að fylgjast með gangi mála í textalýsingu á heimasíðu UEFA, sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×