"Löndunarbið“ í Langá: Áfram mok í Elliðaánum 21. júní 2012 17:13 Fossinn Skuggi í Langá. Mikill lax er genginn upp fyrir teljarann við fossinn. Mynd/GVA
Langá á Mýrum var opnuð í dag. Eftir fyrstu vakt höfðu veiðst 22 laxar og voru þeir fengnir víða um ána. Mikill lax er genginn upp á miðsvæðin, að því segir í frétt á svfr.is. Að sögn Jóhannesar Oddssonar veiðivarðar var lítið um að vera á neðri svæðunum en ofar í ánni var mikill hasar, t.d. á Stangarhylssvæðinu. Mikill lax er genginn í gegnum teljarann í Skuggafossi og það sem meira er, þá er Sveðjufossteljarinn farinn að tikka. Áin er því nánast öll virk upp á fjall, sem er með eindæmum. Vænir laxar eru í aflanum, og hafa glæsilegar tveggja ára hrygnur verið teknar í klakið. Langáin opnar því á sömu nótum og nágrannaáin Hítará, eða með eindæmum vel. Áfram ævintýri í Elliðaánum! Allar stangirnar fengu kvótann í Elliðaánum í morgun auk þess sem að fjórum flugufiskum var sleppt. Á þremur vöktum hafa því veiðst 43 laxar! "Morguninn í morgun sannar það að hin góða byrjun í gær var engin tilviljun" sagði Ólafur E. Jóhannsson í hádeginu í dag í viðtali við svfr.is. Segir hann flugulaxa vera að veiðast á undarlegustu stöðum, svo sem í Miðkvörn, Fossinum og Stórafossi. Ástæðan er að sjálfsögðu sú að að þegar að allir eru búnir með kvótann er flugan dregin fram og í ljós kemur að víða má fá lax á það agn, jafnvel í „ótrúlegustu pyttum." Veislan heldur sem sé áfram í Elliðaánum. svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Risalax úr Aðaldalnum og fleiri stórir hængar Veiði Frostastaðavatn frábært fyrir unga veiðimenn Veiði Góð bleikjuveiði við Ásgarð Veiði Veiddi 34 punda lax við Tannastaði Veiði Laxinn mættur í Langá Veiði Góðir dagar inn á milli í Langá Veiði Fín veiði á Barnadögum SVFR í Elliðaánum Veiði Hítarvatn komið í gang Veiði Ágætis opnun í Hítará og Grímsá Veiði Besta opnun Veiðivatna í 10 ár Veiði