Tíska og hönnun

Gyðja Collection kynnir nýja sumarlínu

Sigrún Lilja, framkvæmdastjóri Gyðju.
Sigrún Lilja, framkvæmdastjóri Gyðju.
Um glænýja skó- og fylgihlutalínu fyrir sumarið er að ræða sem unnin er úr hágæða íslensku roði.

„Ég nota mikið íslenskt roð í fylgihlutina frá Gyðju en allir skórnir eru úr ekta leðri og roði að innan sem utan. Fiskleður er bæði sterkt og meðfærilegt og hefur frá náttúrunnar hendi einstaka eiginleika.

Það er mjög gaman að vinna með þetta flotta hráefni því að í hverri tegund er hægt að leika sér með áferð, liti og yfirborðsmeðferðir. Þekktu alþjóðlegu merkin eins og Prada, Dior, Nike, Ferragamo og Puma eru einnig farin að nýta sér þetta einstaka íslenska hráefni sem unnið er í Sjávarleðri á Sauðárkróki." segir Sigrún Lilja, framkvæmdastjóri Gyðju, sem mun afhenda Þóru Arnórsdóttur fyrsta skóparið og veski í stíl úr nýju línunni sunnudaginn næstkomandi við athöfn í garðveislu að Rafstöðvarvegi 29 í Elliðaárdalnum klukkan 15.

Skór Þóru, sem eru svartir að lit, kallast Freyja og eru úr íslensku umhverfisvænu laxaroði.

„Mér fannst tilvalið að færa Þóru, sem er óhrædd við að ryðja brautir fyrir komandi kynslóðir kvenna, fyrsta skóparið úr nýrri línu Gyðju á sunnudaginn kemur," segir Sigrún Lilja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.