Fyrsti dagurinn gaf 26 laxa! Svavar Hávarðsson skrifar 5. júní 2012 23:22 Alls komu 26 laxar á þurrt og þeir vegnir og metnir á bökkum Blöndu og Norðurár á fyrsta veiðidegi þessa veiðisumars. Svavar Hávarðsson
Opnunardagurinn var gjöfull, bæði í Borgarfirðinum og fyrir norðan. Þegar veiðimenn komu í hús eftir veiðar í Blöndu var afraksturinn 10 laxar, sá stærsti 17 pund. Í Blöndu fengust sex laxar á fyrri vaktinni en fjórir á þeirri seinni. Eins og löngum fyrr komu laxarnir úr Damminum og af Breiðunni. Stefán Páll Ágústsson, hjá Lax-á, sagði í stuttu spjalli við Veiðivísi að framhaldið lofaði góðu, töluvert væri af fiski á svæðinu og útlitið því gott. Í Norðurá gaf seinni vaktin fimm laxa en ellefu komu á land í morgun. Því hafa stjórnarmenn og þeirra fólk þegar bætt tölur frá opnuninni í fyrra sem gaf 13 laxa. Meðalveiði þessarar aldar í Norðurá er þegar horfin sjónum en átta laxar eru meðaltalið síðan árið 2000. Hörður Vilberg, einn stjórnarmanna SVFR, sagði að eitt og annað sé afar athyglisvert við fyrsta daginn í Norðurá. Fiskar eru að koma upp á mörgum veiðistöðum; Brotinu, Eyrinni, Bryggjunum, Skerinu og Konungsstreng en fiskur sem kom af Réttarhylsbroti vekur sérstaka athygli en sá veiðistaður er ofan við fossinn Glanna. Veiðivísir hefur ekki heimildir fyrir því að lax hafi veiðst í opnun fyrir ofan Glanna í seinni tíð. Vitað er að tíu laxar voru gengnir upp í gegnum stigann í fossinum en það segir bara hálfa söguna. Eins og vatnsstaðan er í Norðurá má vel vera að lax hafi sniðgengið stigann og farið fossinn sjálfan, svo ekkert er hægt að fullyrða um hvað mikið er af laxi á svæðinu þar fyrir ofan. Þá vakti það einnig athygli að einn lax var „hitchaður" á Eyrinni, svo menn voru að beita ýmsum aðferðum á þessum fyrsta degi. Laxarnir sem veiddust voru flest allir á bilinu 70 til rúmlega 80 sentimetrar, sem í pundum myndi vera um 10 til 13 punda fiskar. Einhverjir voru grálúsungir en aðrir hafa gengið í ána fyrir einhverjum dögum síðan og hafa hreinsað sig af lúsinni. Lokatölur úr ánum tveim eftir fyrsta veiðidag eru því 26 stórir og fallegir laxar. Norðurá hefur vinninginn í fjölda en Blanda hefur gefið stærsta laxinn til þessa. Veiðivísir mun fylgjast með opnunarhollunum þar til veiðum er lokið, svo fylgist með!Lax-á
Stangveiði Mest lesið Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns Veiði Fæðisskylda afnumin eftir 15. júlí í Laxá Veiði Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði Róleg veiði en margir við bakkann Veiði Minnivallalækur tekur við sér Veiði Aðeins ein helgi eftir til rjúpnaveiða Veiði Eyjafjarðará að ná sér eftir mikil skakkaföll Veiði Kýs að hnýta flugur með konum Veiði Laxveiðin 2011 - Bráðabirgðatölur Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði