Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 25-18 Henry Birgir Gunnarsson í Vodafonehöllinni skrifar 2. febrúar 2012 15:09
Valsmenn nýttu greinilega EM-fríið nokkuð vel þó svo þjálfarinn, Óskar Bjarni Óskarsson, væri fjarverandi með landsliðinu í Serbíu. Þeir þurftu að rífa sig upp gegn Haukum til þess að komast aftur í baráttuna í efri hlutanum í N1-deild karla og það er nákvæmlega það sem þeir gerðu. Unnu sannfærandi sigur gegn andlausu Haukaliði. Fyrri hálfleikur var ákaflega lélega leikinn af beggja hálfu. Hann var eiginlega hörmulegur. Hver mistökin ráku annað og bæði lið virtust vart vita í hvorn fótinn þau áttu að stíga. Þau voru þó álíka léleg í sínum aðgerðum og héldust því í hendur allt til hálfleiks. Staðan 8-8 í hálfleik sem sagði sína sögu um gæði sóknarleiks liðanna. Hann var ekkert minna en skelfilegur. Það var aðeins eitt lið sem nennti að taka á því í seinni hálfleik og það voru Valsmenn. Þeir stigu upp á meðan Haukarnir voru enn værukærir og ekki tilbúnir í slaginn. Viljinn var allur Valsmanna. Vörn og markvarsla hrundi hjá Haukunum og Valsmenn gengu á lagið. Þeir skelltu vörninni líka í lás og fengu auðveldari mörk. Haukarnir höfðu ekki kraftinn í slaginn og sigur Valsmanna að lokum mjög sannfærandi. Finnur Ingi átti flottan leik fyrir þá sem og Anton en hann steig einnig upp í síðari hálfleik. Varnarlínan var siðan öll afar þétt í leiknum eins tölurnar gefa til kynna. Freyr var allt í öllu í liði Hauka og Aron varði vel í fyrri hálfleik. Aðrir voru einfaldlega slakir.Hlynur: Unun að fylgjast með varnarleiknum "Ég held að það hafi enginn búist við þessu af okkur miðað við frammistöðuna i desember. Við spiluðum frábæran varnarleik í dag og unun að fylgjast með þessu úr besta sætinu," sagði brosmildur markvörður Vals, Hlynur Morthens, sem þurfti oft ekki að verja þar sem varnarmennirnir hans sáu um það. "Við erum búnir að æfa vel í fríinu og jafnvel allt of mikið," sagði Hlynur og hló við. "Það var samt ryð í okkur framan af og menn að komast í gang. En þetta kom í síðari hálfleik hjá okkur." Heimir Ríkarðsson aðstoðarþjálfari sá um æfingar á meðan Óskar Bjarni var í Serbíu. Var svona gott að losna við kallinn? "Það er alltaf gott að losna við öskrin í honum en þá tekur Heimir reyndar bara við. Að öllu gríni slepptu var þetta fínt frí sem við nýttum vel. Við ætlum í úrslitakeppnina og þá þurfum við að vinna bestu liðin eins og við gerðum í dag."Aron: Okkar lélegasti leikur í vetur Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var allt annað en sáttur við sitt lið í kvöld og las liðinu heldur betur pistilinn inn í klefa eftir leik. "Ég er mjög reiður enda var þetta mjög lélegt. Hugarfarið hjá liðinu var ekki í lagi í dag. Það er eitt að tapa þegar menn leggja sig fram en hitt liðið er bara betra og annað að tapa þegar við töpum svona kraftlausir og andlausir," sagði Aron svekktur. "Menn héldu að þetta kæmi af sjálfu sér. Þetta var slappur leikur og dómgæslan í sama gæðaflokki. Við náðum aldrei að rífa okkur í gang og alveg sama hver kom inn. Andlegur undirbúningur var greinilega ekki í lagi því menn voru værukærir." Haukaliðið hefur sýnt allt annan leik í vetur og furðulegt að sjá það svona andlaust. Aron segir að þetta hafi verið ágætis áminning fyrir liðið. "Aðvörunarbjöllurnar klingja og menn þurfa að taka til hjá sjálfum sér. Við erum búnir að vera flottir í vetur og þetta er eini leikurinn það sem af er vetri þar sem ég get sagt að við höfum verið lélegir og ekki átt séns. "Við vorum búnir að tapa tveim leikjum fram að þessum leik og báðum með einu marki þar sem sigurmarkið kom undir lokin. Það sýnir ótrúlegan stöðugleika í liðinu en við getum ekki leyft okkur að taka svona blund. Þetta var klárlega okkar slakasti leikur í vetur. Þetta var spark í afturendann en menn þurfa að taka þessu og mæta einbeittir á næstu æfingu," sagði Aron Kristjánsson.
Olís-deild karla Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Körfubolti „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Fleiri fréttir Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara „Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða 75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig Andrea snýr heim í Olís-deildina Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Biður Dag afsökunar Sjá meira
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“