Gagnrýni

Farðu úr úlpunni!

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Bíó. Blitz. Leikstjórn: Elliott Lester. Leikarar: Jason Statham, Paddy Considine, Aidan Gillen, David Morrissey, Zawe Ashton.



Breska hasarhetjan Jason Statham getur látið til sín taka þegar sá gállinn er á honum. Í myndinni Blitz er hann hins vegar á sjálfstýringu og gefur lítið af sér. Hann klæðist úlpu stóran hluta myndarinnar og ég fékk það á tilfinninguna að það væri ekki ákvörðun búningadeildarinnar heldur bara það að Statham hefði mætt á tökustað og hreinlega ekki nennt að fara úr úlpunni.

Blitz fjallar um lögreglumanninn Tom Brant sem reynir, ásamt félögum sínum, að hafa hendur í hári löggumorðingja sem kallar sig Blitz. Brant, eins og flestar persónur Stathams, á að sjálfsögðu að vera grjótharður og tilfinningalaus, en er ofan á það hundleiðinleg og hommafælin karlremba. Atriðin þar sem áhorfandinn á að hlæja að því hversu dónalegur og gamaldags hann er eru mun pínlegri en þau eru fyndin.

Myndir sem reyna að afsaka lögregluofbeldi í nafni „réttlætis" skilja oftast eftir óbragð í munni, og Blitz gerir það ítrekað. Statham ætti að hysja upp um sig, fara úr úlpunni og velja aðeins betri hlutverk. Þetta fer að verða vandræðalegt. Endum þetta samt á jákvæðu nótunum.

Löggumorðinginn er virkilega viðurstyggilegur og frábærlega leikinn af Aidan nokkrum Gillen. Hann náði þó ekki að drepa nærri því jafn marga og Statham drap úr leiðindum.

Niðurstaða: Þunnur þrettándi með þreyttum leikara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.