Leikjavísir

Apple og Sony á lista yfir verstu tæknimistök 2011

Margir biðu spenntir eftir iPhone 5 og urðu því fyrir vonbrigðum þegar Apple kynnti nýja útgáfu af iPhone 4.
Margir biðu spenntir eftir iPhone 5 og urðu því fyrir vonbrigðum þegar Apple kynnti nýja útgáfu af iPhone 4. mynd/AFP
Það má segja að tækniiðnaðurinn hafi blómstrað á árinu 2011. En þrátt fyrir miklar framfarir í snjallsímatækni er ljóst að mörg feilspor voru tekin. Vefsíðan Engadget hefur tekið saman það helsta sem fór úrskeiðis hjá tæknifyrirtækjum á árinu.

Fyrirtæki á borð við Apple, HTC, Netflix, Sony og Nintendo er öll gagnrýnd fyrir að bregðast viðskiptavinum sínum.

Álitsgjafar Engadget telja að Apple hafa brugðist viðskiptavinum sínum þegar fyrirtækið kynnti iPhone 4S. Farsímaframleiðandinn HTC fær síðan slæma einkunn fyrir snjallsímann Thunderbolt.

Vefsíðan Netflix á vísan stað á listanum en viðskiptavinir síðunnar voru æfir eftir að nafni hennar var breytt og áskriftarkostnaður var aukinn. Netflix hefur dregið breytingarnar til baka.

Hægt er að sjá listann hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.