Matur

Aðventukræsingar Rósu: Girnilegir eftirréttir um jólin

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskrift að súkkulaðifreistingu sem lætur súkkulaðiunnendur hreinlega falla í stafi.

Einnig bökuðum, fylltum eplum sem er fallegur og spennandi eftirréttur á aðventu eða um jól

Úr Íslandi í dag á Stöð 2.

1) a) Súkkulaðifreisting

Sannir sælkerar kætast og súkkulaðiunnendur hreinlega falla í stafi.

f. 4-6

3 dl rjómi

250 g suðusúkkulaði

3 eggjarauður

1/3 tsk. salt

2 msk. smjör

1 msk.kaffilíkjör eða 1 tsk. vanilludropar

Hitið rjómann í potti við vægan hita. Takið af hitanum og hrærið súkkulaðið saman við þar til það bráðnar. Hrærið vel. Hrærið eggjarauðurnar og saltið vel saman.

Bætið 1 dl af súkkulaðiblöndunni varlega saman við eggjarauðurnar. Hellið síðan blöndunni í pottinn og hrærið mjög vel. Hrærið svo smjörinu og líkjörnum eða vanilludropunum saman við. Hellið í litlar skálar, bolla eða glös og kælið í ísskáp í a.m.k. 2 tíma.

Skreytið með berjum eða ferskri myntu, ef vill.

b) Bökuð, fyllt epli

Fallegur og spennandi eftirréttur á aðventu eða um jól.

4 lítil epli

súkkulaði, rúsínur, hnetur, möndlur, sykurpúðar ofl

eplaedik

sykur

þeyttur rjómi eða ís

kanilstangir til skrauts

Skerið ofan af eplunum, kjarnhreinsið þau og skafið varlega innan úr þeim þar til pláss er orðið fyrir fyllinguna. Fyllið eplin með hverju því góðgæti sem ykkur dettur í hug, súkkulaði, sykurpúðum, hnetum, rúsínum eða öðru. Hellið síðan vænum slatta af eplaediki í eldfast mót (má nota líka bara vatn ef edik er ekki til staðar) og stráið svolitlum sykri yfir vökvann.

Raðið eplunum í fatið og bakið í 15-20 mínútur við 170 gráður. Setjið síðan þeyttan rjóma eða ís yfir hvert epli, skreytið með kanilstöng og berið fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.