Einföld hugmynd, góð plata Trausti Júlíusson skrifar 15. september 2010 09:30 Albúm eftir Orra Harðar.
Tónlist **** Albúm Orri Harðarson Albúm er fimmta plata Orra Harðarsonar og sú fyrsta síðan Trú kom út fyrir fimm árum. Albúm er byggð á ákveðinni hugmynd. Það eru 25 ár liðin frá því að Orri kom fyrst fram opinberlega, en sú staðreynd gaf honum þá hugmynd að gera plötu sem væri í anda fyrstu skrefa hans á tónlistarbrautinni - eingöngu rödd og kassagítar. Þetta er alvöru sólóplata í þess orðs sterkustu merkingu. Öll lög, textar, söngur, hljóðfæraleikur, hljóðritun og hljóðblöndun eru verk Orra sjálfs. Og öll tónlistin er spiluð á sama kassagítarinn. Það getur verið gott fyrir listamenn að hafa ákveðna hugmynd til að vinna út frá. Kannski er það ástæðan fyrir því hversu heilsteypt og flott plata Albúm er. Lögin tíu standa öll fyrir sínu, textalega séð er platan langt yfir meðallagi, flutningur er góður og platan hljómar sérstaklega vel. Þó að það séu bara rödd og kassagítar á Albúm þá eru útsetningarnar fjölbreyttar og greinilegt að Orri kann vel að beita fyrir sig kassagítarnum. Platan er mjúk og lágstemmd og hljómurinn hlýr. Textarnir eru flestir samfélagsrýni. Óland fjallar um þjóðfélagið sem fæddi af sér hrunið: „Er það þjóðin sem er vitlaus/eða bara fólkið sem hún kaus?/Hvort er það, væna/egg eða hæna?". Orri hefur sterkar skoðanir og liggur ekki á þeim. Bæði Kredit og Í guðs friði eru trúleysistextar og „nýaldarpakk", „kverúlantar" og „popúlistar" fá að heyra það á plötunni. En svo er ástin líka með í spilinu. Tilillagið Albúm er t.d. ástartexti með nostalgíublæ sem fjallar um þann tíma þegar fólk lá yfir vínylplötualbúmum. Gaman að þessu. Orri er enginn Megas, en honum liggur margt á hjarta og kemur því ágætlega frá sér. Það er í raun ekki hægt annað en að óska Orra til hamingju með plötuna. Trú var fín, en Albúm er töluvert betri. Niðurstaða: Tíu lög, rödd, kassagítar og hvergi dauður blettur.
Lífið Mest lesið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið „Stolt af því að hafa ekki gefist upp á sjálfri mér“ Lífið Yfir sig ástfangin og býr bæði á Spáni og Íslandi Lífið Friðrik Þór og Guðrún selja 225 milljón króna parhús í Hlíðunum Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Enn ástfangnari að sjá maka sinn í foreldrahlutverkinu Lífið Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira