Lífið

Þrettán ára ökuníðingur

Ástfanginn Stephen Moyer segist treysta kærustu sinni, leikkonunni Önnu Paquin, fullkomlega.
Ástfanginn Stephen Moyer segist treysta kærustu sinni, leikkonunni Önnu Paquin, fullkomlega.

True Blood-leikarinn Stephen Moyer svaraði tuttugu spurningum í grein í karlaritinu Playboy fyrir skemmstu og talaði meðal annars um samband sitt við mótleikkonu sína Önnu Paquin. Hann viðurkenndi einnig að hafa misst ökuprófið sautján ára gamall eftir að hafa verið tekinn fyrir ölvunarakstur.

„Þegar ég var þrettán ára gamall og foreldrar mínir fóru eitthvert út þá stal ég bíl þeirra, náði í besta vin minn og keyrði um eins og brjálæðingur. Þegar ég var fimmtán ára var ég farinn að prófa rallíakstur og ég var búinn að kaupa mér bíl áður en ég fékk bílprófið. Þremur vikum eftir að ég fékk prófið var ég handtekinn fyrir ölvunarakstur og missti prófið í heilt ár," sagði hinn ökuglaði leikari.

Í viðtalinu sagðist hann jafnframt treysta kærustu sinni fullkomlega og að samband þeirra byggist mikið á trausti.

„Ég hef aldrei treyst neinum eins vel og ég treysti Önnu. Þegar við vorum í fyrsta skipti í sundur þá fannst mér eins og einhver hefði rifið hluta af mér burt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×