Lífið

Collin Russell spilar með Ultra Mega Technobandinu

Collin Russell Er kominn til landsins eftir langa bið til að troða upp með félögunum sínum í Ultra Mega Technobandinu Stefáni.
Collin Russell Er kominn til landsins eftir langa bið til að troða upp með félögunum sínum í Ultra Mega Technobandinu Stefáni.

Elektró-þjóðlagapopparinn Collin Russell er mættur til landsins og ætlar að spila með Ultra Mega Technobandinu Stefáni á nokkrum tónleikum á næstunni.

„Við höfum alltaf verið að bíða eftir hinu fullkomna tækifæri til að fá hann til Íslands og nú er það komið,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason Olsen.

Sigurður og félagar hans í Ultra Mega Technobandinu Stefán fengu félaga sinn, Collin Russell, til landsins á dögunum. Collin, sem er vel þekktur á vesturströnd Bandaríkjanna fyrir elektró-þjóðlagatónlist sína, er nú kominn í sína fyrstu heimsókn til landsins eftir langa bið.

„Ég kynntist honum þegar við vorum báðir í námi við tónsmíðar í Berkley síðasta sumar,“ segir Sigurður. „Fyrstu kynni mín af Collin voru þegar ég kom að honum þar sem hann var að hlusta á Gling Gló plötu Bjarkar og vissi einnig um Tríó Guðmundar Ingólfssonar.“

Russell er mikill aðdáandi íslenskrar tónlistar og hefur Sigurður kynnt fyrir honum íslenskar tónlistarmyndir eins og Rokk í Reykjavík og Gargandi snilld.

Collin og UMTB Stefán ætla að spila á þrennum tónleikum ásamt fleiri böndum um helgina. 16. júní verða þeir á Dillon, 17. júní á Sódómu, þar sem jafnframt er verið að halda upp á tveggja ára afmæli dauða hljómsveitarinnar Jakobínarínu og að lokum 19. júní á Venue. Ef vel gengur vonast félagarnir til að geta spilað saman á Iceland Airwaves í haust.

linda@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×