Lífið

Bassaleikari í gítarsmíði í LA

Daníel Smári Hallgrímsson Heldur til borg englanna í haust til að leggja stund á gítarsmíði.Fréttablaðið/Valli
Daníel Smári Hallgrímsson Heldur til borg englanna í haust til að leggja stund á gítarsmíði.Fréttablaðið/Valli

Daníel Smári Hallgrímsson er einn af átta nemendum sem fengu inngöngu í hinn fræga Musicians Institut í Los Angeles. Daníel er nýútskrifaður frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og mun leggja stund á eins árs nám í gítarsmíði. Han er bassaleikari í hljómsveitinni í Mikado.

Skólinn er mjög virtur innan tónlistargeirans og Daníel bjóst alls ekki við því að komast inn.

„Ég fékk fréttirnar daginn fyrir útskriftarveisluna og var auðvitað í skýjunum með það," segir Daníel Smári sem starfar í sumar hjá skapandi sumarstörfum Hins hússins og í Hljóðfærahúsinu.

Daníel spilar á bæði bassa og gítar. Námið er viðamikið, stendur yfir í eitt ár og er verklegt og bóklegt. Frægir gestakennarar úr hljóðfæraheiminum koma og halda fyrirlestra og miðla af sinni visku sinni.

„Ég er svakalega spenntur að fara út og læra. Sértaklega að læra að hanna gítar frá grunni. Hönnunarhlutinn af náminu heillar mig mest. Ég mun læra að smíða og hanna rafgítara, rafbassa og kassagítara."

Smíð á einum gítar tekur um tvo til þrjá mánuði og er enginn hægðarleikur. Daníel segist gera sér grein fyrir að gítarsmíði sé kannski ekki gullnáma en hann vilji gera þetta, elta drauminn sinn, frekar en að fara í lögfræði eða viðskiptafræði eins og aðrir á hans aldri.

Draumurinn er svo að komast í læri hjá einhverjum gítarsmið í Bandaríkjunum. Daníel heldur út um miðjan september og kærasta hans fer með. Skólinn er á Hollywood Boulevard og verður Daníel því umkringdur frægum dags daglega.

„Ég var að kaupa mér myndavél svo ég geti örugglega náð að festa ævintýrið og jafnvel eitthvað af frægu fólki á filmu." - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×