Valsmenn héldu núna út á móti Haukum og jöfnuðu einvígið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2010 16:57 Mynd/Valli
Valsmenn unnu tveggja marka sigur á Haukum, 22-20, í Vodafone-höllinni í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla í handbolta. Haukarnir stálu sigrinum í fyrsta leiknum en Valsmenn héldu hinsvegar út á Hlíðarenda í dag og staðan er því jöfn, 1-1, í einvíginu. Valsmenn byrjuðu leikinn frábærlega, skoruðu fyrstu fimm mörkin og héldu marki sínu hreinu fyrstu 9 mínúturnar. Haukar minnkuðu muninn niður í eitt mark um miðjan hálfleikinn en Valsmenn voru aftur komnir með þriggja marka forskot í hálfleik, 14-11. Valsmenn héldu áfram uppteknum hætti í seinni hálfleik, Haukarnir skoruðu fyrsta markið og minnkuðu muninn í tvö mörk en Valur komst strax aftur fjórum mörkum yfir. Haukamaðurinn Elías Már Halldórsson gerði stór mistök þegar hann fékk tvisvar sinnum tveggja mínútna brottreskstur fyrir mótmæli í stöðunni 17-13 fyrir Val. Haukarnir voru því manni færri næstu fjórar mínútur og Valsmenn nýttu sér þetta vel og komust sex mörkum yfir. Valsmenn gátu þó ekki verið öryggir með neitt eftir þróun mála í fyrsta leiknum. Haukarnir skoruðu 5 mörk í röð og minnkuðu muninn í 21-20 en nær komust þeir ekki og Arnór Þór Gunnarsson tryggði Valsmönnum sigurinn. Fannar Þór Friðgeirsson og Arnór Þór Gunnarsson skoruðu báðir sex mörk fyrir Val og Hlynur Morthens varði 23 skot í markinu. Sigurbergur Sveinsson var markahæstur hjá Haukum með 10 mörk. Birkir Ívar Guðmundsson varð 6 skot í marki Hauka ífyrri hálfleik en Aron Rafn Eðvarðsson stóð í markinu í seinni hálfleik og varði 8 skot. Valur-Haukar 22-10 (14-11) Mörk Vals (Skot): Fannar Þór Friðgeirsson 6/1 (13/2), Arnór Þór Gunnarsson 6/3 (7/3), Sigurður Eggertsson 3 (8), Orri Freyr Gíslason 2 (2), Elvar Friðriksson 2 (3), Sigfús Páll Sigfússon 1 (3) Gunnar Ingi Jóhannsson 1 (1), Ingvar Árnason 1(1), Jón Björgvin Pétursson (2), Baldvin Þorsteinsson (4).Varin skot: Hlynur Morthens 23 (40/3, 58%), Ingvar Kristinn Guðmundsson 1/1 (4/4, 25%) Hraðaupphlaup: 4 (Fannar 2, Sigfús, Gunnar) Fiskuð víti: 5 (Sigfús 2, Ingvar, Arnór, Baldvin) Brottvísanir: 10 mínúturMörk Hauka (Skot): Sigurbergur Sveinsson 10/4 (16/5), Pétur Pálsson 2 (3), Einar Örn Jónsson 2 (3), Guðmundur Árni Ólafsson 2/2 (5/3), Freyr Brynjarsson 1 (2), Elías Már Halldórsson 1 (4), Heimir Óli Heimisson 1 (1), Björgvin Þór Hólmgeirsson 1 (5), Gísli Jón Þórisson (3), Stefán Rafn Sigurmannsson (1).Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 6/1 (20/4, 30%), Aron Rafn Eðvarðsson 8 (16/1, 50%) Hraðaupphlaup: 2 (Einar Örn 2) Fiskuð víti: 8 (Sigurbergur 3, Pétur 2, Freyr, Stefán, Tjörvi Þorgeirsson) Brottvísanir: 10 mínútur
Olís-deild karla Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira