Gagnrýni

Tónverk úr draumi

Jónas Sen skrifar
Tónlist

Heilagur draumur

Verk eftir John Tavener. Kammerkór Suðurlands syngur undir stjórn Hilmars Arnars Agnarssonar.

Geislaplata með verkum eftir John Tavener ber heitið Heilagur draumur. Platan heitir eftir einu verkinu á plötunni, en tónskáldið mun hafa dreymt það eftir messu í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Tavener gekk í rétttrúnaðarkirkjuna þegar hann var rúmlega þrítugur, og dulúðin og andaktin í kirkjunni hefur einkennt tónlist hans allar götur síðan.

Einfaldleikinn er í fyrirrúmi í verkunum á geislaplötunni. Oft er einn undirliggjandi tónn út í gegn, og það gefur tónlistinni fókus, þjappar henni saman. Samt er músíkin ekki einfeldningsleg eða ódýr, það er merking í hverjum tóni. Hendingarnar eru sprottnar af íhugun og innri upplifun, og það er einfaldlega ekki hægt annað en að hrífast með.

Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar syngur af mikilli tilfinningu og nákvæmni. Einsöngvararnir eiga líka góða spretti, sérstaklega Hrólfur Sæmundsson, sem ég held að hafi aldrei sungið eins vel. Hann er auðheyrilega vaxandi söngvari.

Niðurstaða: Falleg, stundum hugleiðslukennd tónlist. Þetta er flott plata!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.