Allra meina bót Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 4. ágúst 2010 06:00 Til eru mörg athyglisverð úrræði fyrir þá sem búa við hvers konar kvilla á líkama og sál í Granadahéraði á Suður-Spáni. Til dæmis býr kynlegur kvistur í borginni Baza sem kallaður er Santon og segist hann geta, með aðstoð Maríu meyjar, komið hvaða kvilla sem er fyrir kattarnef. Heimamenn hafa þó ekki mikla trú á honum og gera að honum gys. Hins vegar kemur fólk víðs vegar að af Spáni og losar sig við vanda og veikindi. Hann segir þjónustu sína vera fría en fólk lætur þó eitthvað af hendi rakna. Allavega hefur hann haft efni á því að reisa bænahús mikið við heimili sitt. En þótt bænahúsið sé veglegt getur honum þó orðið á í messunni því einhverju sinni fór hann fylktu liði upp á hæð eina þar sem María átti að birtast. Bað hann hópinn að horfa til sólar sem fólkið og gerði og varð vitanlega meint af. María mætti hins vegar ekki til þessa meinlega fundar sem endaði á bráðamóttökunni. Í þorpinu Zújar, þar sem ég hef alið manninn, býr gömul kona sem losar menn undan álögum augans illa. Þetta illa auga er þekkt víða um Miðjarðarhafið en það virkar eins og illur andi sem leggst á menn þegar einhver öfundar þá af einhverjum sökum. Kona þessi leggur þá fingur sína í ólívuolíu og gerir krossmark á enni þess sjúka og verður hann þá eins og nýsleginn túskildingur. Óþarft er að segja frá kalþólsku prestunum sem veita mönnum syndaaflausn á einu augabragði. Ég hef átt nokkurt erindi við prestinn í Zújar og varð þá stundum vitni að því að konur, bognar af syndum og samviskubiti, króuðu guðsmanninn af úti í horni og sögu raunir sínar í stuttu máli. Hefur hann þá uppi fá orð en gerir krossmark við þá þjáðu. Koma þær síðan út úr kirkju beinar í baki og tilbúnar til að hlaða herðar sínar syndum á nýjan leik. Engar sannanir hef ég fyrir því að svona brögð beri árangur. Hins vegar finnst mér þau öll krydda tilveruna og þar með hafa þau unnið fyrir tilverurétti sínum í mínum huga. Ef guð er þarna að verki þá er hann líklega að beita gamansemi sinni: sterkari lækningamáttur er varla til. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun