Komdu með mér inn í skuggann Friðrika Benónýsdóttir skrifar 17. nóvember 2010 06:00 Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur.
Bækur/ **** Ljósa Kristín Steinsdóttir Vaka-Helgafell Ævi sveitakonunnar Pálínu Jónsdóttur, sem alltaf er kölluð Ljósa, frá barnæsku til dauðadags er viðfangsefni skáldsögu Kristínar Steinsdóttur og ber nafn söguhetjunnar. Ljósa elst upp í íslenskri sveit á fyrri hluta síðustu aldar, er hreppstjóradóttir og dekurbarn sem á unglingsárum veikist af geðhvarfasýki sem hún glímir við til æviloka. Framan af ævi er líf hennar þó nokkuð venjulegt, hún fær ekki þann sem hún elskar, giftist öðrum, eignast fimm börn, býr manni sínum fallegt heimili og fúnkerar nokkuð eðlilega. Sérlunduð reyndar, en skemmtileg og glaðlynd. En geðhvarfasýkin hremmir hana smám saman og síðustu árin er hún meira og minna á valdi hennar. Úthrópuð af sveitungum, vinalaus og bókstaflega eins og dýr í búri. Kristín vinnur mikið þrekvirki með þessari sögu. Þótt söguefnið sé dimmt er sagan skemmtileg og stílfærni höfundarins gerir það að verkum að nánast ómögulegt er að leggja bókina frá sér fyrr en að lestri loknum. Sveitin afskekkta lifnar fyrir augum lesandans og Ljósa er frábærlega unnin persóna sem grípur lesandann heljartökum og sest að í hjarta hans. Örlög hennar eru þyngri en tárum taki og hræra lesandann til djúprar meðaumkunar. Ást hennar á sínum kvensama föður, sem á börn með konum á öðrum hverjum bæ að fornum hreppstjórasið, er leiðarstef í lífi hennar og í raun vex hún aldrei upp úr því að vera augasteinninn hans pabba, þótt hann bregðist henni á ögurstundu. Á köflum detta manni í hug kvenhetjurnar úr skáldsögum Huldu sem dreymir um fegurð og fjarlægar borgir á meðan þær þrá í leynum listamanninn svikula sem stoppaði í dalnum um stund, en Ljósa er þó mun betur dregin persóna en þær og nærfærnar og sannfærandi lýsingar á geðhvarfasýkinni fullkomlega trúverðugar. Þetta er persóna sem lesandinn elskar með öllum hennar kostum og göllum. Sama má segja um aðrar persónur bókarinnar, þær stíga upp af síðunum og verða raunverulegar í huga lesandans eins og bestu persónur Laxness. Senan í fjárhúsunum er snilldarleg vísun í kindardráp Rósu í Sjálfstæðu fólki og ekki síður áhrifamikil. En það er ekki bara persónusköpunin og söguefnið sem gera þessa bók eftirminnilega. Mál, stíll og bygging haldast í hendur og skapa sterka og krefjandi sögu sem heldur athygli lesandans frá upphafi til enda, vekur spurningar og slær á alla strengi tilfinningaskalans. Niðurstaða: Vel stíluð og vel byggð saga með frábærri persónusköpun. Saga sem spannar allan tilfinningaskalann og ómögulegt er að leggja frá sér.
Mest lesið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Lífið Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Bíó og sjónvarp Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Charli xcx gifti sig Lífið Fleiri fréttir Gamli er (ekki) alveg með'etta Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Wardruna í vanda – þegar dulúðin náði ekki flugi Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Sjá meira