Lífið

Aska ógnar opnun sundlaugar í Eyjum

Arnsteinn Ingi Jóhannesson segir menn vinna hörðum höndum við að þrífa öskuna sem féll á svæðið um síðustu helgi. Til hægri má sjá trampolínrennibrautina. Mynd/Óskar
Arnsteinn Ingi Jóhannesson segir menn vinna hörðum höndum við að þrífa öskuna sem féll á svæðið um síðustu helgi. Til hægri má sjá trampolínrennibrautina. Mynd/Óskar

Nýtt sundlaugarsvæði var tekið í gagnið í Vestmannaeyjum í byrjun maí og þykir hið glæsilegasta. Á svæðinu er meðal annars einstök trampólínrennibraut, en aðeins tvær slíkar eru til í heiminum í dag, þreföld hraðrennibraut og klifurveggur auk nuddpotta og vaðlaugar.

Öskufall frá Eyjafjallajökli um helgina setti þó strik í reikninginn og hefur svæðið verið lokað síðustu daga.

Formleg opnun svæðisins fer fram á Fjölskyldudegi Vestmannaeyja næsta laugardag og segir Arnsteinn Ingi Jóhannesson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar og ýmsa sjálfboðaliðar vinna hörðum höndum við að þrífa öskuna sem féll á svæðið.

„Við vorum með opið í nokkra daga þar til við neyddumst til að loka vegna öskunnar. Við erum á fullu að moka upp úr laugunum núna en menn eru nú ýmsu vanir og taka þessu með stóískri ró, en auðvitað er þetta mjög svekkjandi. Maður var auðvitað búinn undir eitthvert öskufall en þetta var meira en ég hafði gert mér í hugarlund. Hugur manns er þó frekar hjá þeim uppi á landi, þar sem ástandið er mun verra en hér."

Að sögn Arnsteins voru þeir gestir sem heimsóttu sundlaugarsvæðið í byrjun mánaðarins afskaplega hrifnir og þá einkum yngstu gestirnir.

„Krakkarnir voru mjög hrifnir enda eru þeir búnir að bíða eftir þessu lengi og hlökkuðu mikið til," segir Arnsteinn sem er þó bjartsýnn fyrir sumarið enda er von á fjölda ferðamanna til Eyja í kjölfar opnunar Landeyja­hafnar í júní. - sm








Fleiri fréttir

Sjá meira


×