Fabregas: Barcelona heillar en ég verð áfram hjá Arsenal Elvar Geir Magnússon skrifar 6. ágúst 2010 14:15 Cesc Fabregas í leik með spænska landsliðinu.
Cesc Fabregas mun ekki yfirgefa Arsenal og ganga til liðs við Barcelona fyrir tímabilið, það er nú orðið endanlega ljóst. Arsene Wenger varð að ósk sinni en Fabregas steig fram og tilkynnti að hann væri ekki á förum. „Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því að hafa ekki tjáð mig fyrr. Ástæðan er sú að ég hef ekki vitað nákvæmlega hvað ég ætlaði að gera fyrr en núna," sagði Fabregas. „Ég get ekki neitað því að það var heillandi tilhugsun að ganga til liðs við Barcelona. Þetta er félagið þar sem ég lærði að spila fótbolta, þetta er heimabær minn þar sem fjölskylda mín og fjölskylda eru og félag sem mér hefur alltaf dreymt um að spila fyrir." „Það eru ekki margir leikmenn í heiminum sem vilja ekki spila fyrir Barcelona. Ég hef rætt oft og mörgum sinnum við Arsene Wenger síðustu mánuði og ætla ekki að opinbera hvað sagt var. Niðurstaðan er allavega sú að Barcelona lagði fram tvö tilboð í mig en Arsenal hafnaði báðum," sagði Fabregas. „Ég er atvinnumaður og ég skil vel ákvörðun Arsenal að selja mig ekki. Ég skulda félaginu mikið, stjóranum og stuðningsmönnum og mun virða þessa ákvörðun. Nú mun ég einbeita mér að nýju tímabili með Arsenal." „Ég er leikmaður Arsenal og um leið og ég stíg út á völlinn er það eina félagið sem ég mun hugsa um. Ég hlakka til komandi tímabils og geta einbeitt mér að því að spila fótbolta."
Spænski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Sjá meira