Gunnar Magnússon: Þeir voru miklu hungraðri og miklu betri en við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2010 20:50 Gunnar Magnússon, þjálfari HK. Mynd/Anton
Gunnar Magnússon, þjálfari HK, var allt annað en sáttur með sína menn eftir 30-34 tap fyrir Akureyri á heimavelli í N1 deild karla í handbolta í kvöld í einum af úrslitaleikjunum um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina. „Við vorum engan veginn tilbúnir. Það má hrósa Akureyri fyrir það að þeir voru betri á öllum sviðum og mættu tilbúnir. Þeir ætluðu sér að ná þessu fjórða sæti og voru miklu hungraðri og miklu betri en við í dag. Það er bara staðreynd sem við verðum að eiga við okkur sjálfa," sagði Gunnar eftir leikinn. „Hver einasti leikur fyrir okkur er úrslitaleikur. En við erum bara með þannig lið að við erum ekki búnir að ná upp stöðugleika ennþá og erum bara að vinna í því. Við vinnum Val á útivelli einn daginn en næsta dag erum við eins og byrjendur. Ef við náum upp þessum stöðugleika þá getum við farið í úrslitakeppnina en ef ekki þá verður þetta mjög erfitt," segir Gunnar. HK á leik inni á Akureyri og getur því aftur minnkað muninn í eitt stig. „Við þurfum bara að svara fyrir okkur á sunnudaginn. það er það eina sem við getum gert. Við þurfum að þjappa okkur saman og koma sterkir til baka en þetta var ekki boðlegt," sagði Gunnar en HK mætir Stjörnunni á útivelli á sunnudaginn.
Olís-deild karla Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira