Gunnar Magnússon: Dæmigert fyrir okkur þessa dagana Hjalti Þór Hreinsson skrifar 25. nóvember 2009 21:02 Gunnar Magnússon. Fréttablaðið „
Þetta er bara dæmigert fyrir það að það er ekki alveg allt að ganga upp hjá okkur eins og staðan er í dag," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK eftir leikinn gegn Akureyri sem lið hans tapaði naumlega í kvöld. HK sýndi góða baráttu með því að koma sér aftur inn í leikinn eftir að hafa verið fjórum mörkum undir þegar tíu mínútur lifðu leiks og þeir voru hreint ótrúlega nálægt því að jafna. Engu að síður var 27-26 tap staðreynd fyrir HK. „Ég er ánægður með varnarleikinn og Sveinbjörn var góður fyrir aftan. Sóknarleikurinn var ekkert frábær, við eigum aðeins inni þar, en ég er engu að síður ánægður með karakterinn í liðinu. Baráttan var alveg til fyrirmyndar og við gáfumst aldrei upp. Ég verð að hrósa strákunum fyrir þennan leik," sagði Gunnar sem sagði að jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit. "Við vorum í vandræðum í hornunum, við förum með hátt í tíu færi þar og Flóki var okkur erfiður. Þetta var kaflaskiptur leikur og á þessum slæmu köflum förum við illa með færin. Við verðum að fara að nýta hornin betur, við sköpuðum ágæt færi en nýttum þau ekki. Flóki sá við okkur." „Við tökum bara einn leik fyrir í einu og þessi leikur var skref upp á við. Við vitum að veturinn verður erfiður en við verðum bara að halda áfram. Ef við höldum áfram á sömu braut þá eiga stigin eftir að detta fyrir okkur," sagði Gunnar Magnússon.
Olís-deild karla Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira