Handbolti

FH áfram í bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það var mikil spenna í kvöld þegar Akureyri tók á móti FH í Eimskipsbikarnum en leikur liðanna var í sextán liða úrslitum keppninnar.

FH vann leikinn, 22-23, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 10-16. Akureyringar komu til baka og voru ekki fjarri því að þvinga fram framlengingu.

Akureyri-FH  22-23 (10-16)

Mörk Akureyri: Jónatan Þór Magnússon 6, Heiðar Þór Aðalsteinsson 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Árni Þór Sigtryggsson 3, Oddur Gretarsson 2, Heimir Örn Árnason 2, Andri Snær Stefánsson 1, Geir Guðmundsson 1.

Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 7, Bjarni Fritzson 4, Örn Ingi Bjarkason 4, Ólafur Guðmundsson 4, Benedikt Krtistinsson 2, Jón Heiðar Gunnarsson 1, Sigurgeir Árni Ægisson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×