Handbolti

Akureyri lagði Víking

Akureyri er komið í annað sætið í N1 deild karla eftir 28-23 sigur á Víkingi í leik dagsins. Gestirnir voru skrefinu á undan allan leikinn og tapið þýðir að Víkingar eru enn á botni deildarinnar án sigurs.

Sverrir Hermannsson skoraði 6 mörk fyrir Víking og Sveinn Þorgeirsson 5, en hjá Akureyri var Andri Sær Stefánsson markahæstur með 8 mörk og þeir Oddur Grétarsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Jónatan Magnússon 4 hver.

Valur er á toppi deildarinnar með 8 stig, Akureyri og FH hafa 6 stig og Fram 5 stig. Haukar og HK hafa 4 stig, Stjarnan 3 og Víkingur er á botninum án stiga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×