Krabbakjöt er afar bragðgott og mikið notað víða um heim. Fylgifiskar bjóða viðskiptavinum reglulega upp á krabbakökur með austurlenskum áhrifum, sem Sveinn Kjartansson, matreiðslumaður og einn eigenda Fylgifiska, segir leggjast afar vel í fólk.
„Við höfum aðlagað svona asískar eða austurlenskar krabbakökur svolítið að okkur," útskýrir Sveinn, sem tekur undir að fólk geti verið dálítið feimið við krabbakjöt. „Ég hugsa að það sé nú bara af því að hefðin fyrir því að borða krabbakjöt hefur ekki verið nógu sterk hjá Íslendingum, en alls staðar í kringum okkur er krabbi mikið notaður," segir Sveinn, sem lætur hér í té uppskrift að kökunum.
400 g ýsa
400 g krabbakjöt
200 g surimi
1 stk. rauðlaukur
3 stk. hvítlauksrif
2 stk. rauð chilialdin
2 msk. sæt chilisósa
2 msk. sesamolía
4 límónulauf
ca 30 g kóriander
ca 30 g sæt basilika
1 msk. grænmetiskraftur
4 msk. sesamfræ
nýmalaður pipar og salt eftir smekk
2 msk. hveiti
3 msk. pankó-rasp
Olía til steikingar
Maukið ýsu, krabbakjöt, surimi, lauk og hvítlauk í matvinnsluvél. Smátt söxuðu chili, kóríander, basil og límónulaufum bætt út í hakkið, ásamt sætri chilisósu og sesamolíu. Hrærið vel saman, bætið grænmetiskrafti og sesamfræjum út í. Saltið og piprið eftir smekk. Bætið síðast í hakkið hveiti og pankó-raspi. Steikið í heitri olíu.