Heimagert kynlífsmyndband Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar 26. mars 2008 06:00 Sem dálítið aldurhnigin frú væri ferill minn nú örugglega á fallanda fæti ef hann byggðist á aðdáun múgsins. Þótt ég hafi því miður ekki enn haft framfærslu af glæsileika og hæfileikum til að performera þá læðist að mér ofurlítill en áleitinn hrollur yfir því að jafnöldrur mínar í Hollywood séu sumar afskrifaðar vegna elli. Ef þetta er búið hjá þeim er trúlega orðið of seint fyrir mig núna að byrja harkið í bransanum. Eins og það var nú notalegt að hafa sem varaleið, ef annað myndi bregðast. En við sem notum gamla hraðlestrarnámskeiðið á fjölmiðlana fylgjumst með daglegum fréttum af þeim frægu. Vitum allt um ástalíf og æsilega hegðun söngvara úti í heimi án þess að hafa nokkru sinni heyrt þá syngja. Getum léttilega þulið upp alls kyns fíknir leikara sem við höfum aldrei séð leika. Auðlesnir dálkar og kræsilegar fyrirsagnir hrifsa athyglina því með lítilli fyrirhöfn og næstum engri heilastarfsemi er hægt að öðlast mikilvægar upplýsingar um ýmsar aðferðir til að hressa upp á karríerinn. Og ekki skal vanmeta þær leiðir sem virðast duga svo prýðilega því á okkar litla landi er leiðin frá frægðardraumum og í Séð og heyrt stutt og skilvirk. Þannig gætu aldurstakmörkin á Íslandi verið sveigjanlegri en í útlöndum því þrátt fyrir allt er hégómleikinn lífseigastur allra lasta og mér er ennþá hreint ekki sama um skurnina. Eftir að hafa velt fyrir mér ýmsum möguleikum úr lífi annarra til að tendra kveikjuna að væntanlegri eigin frægð, eru nokkrar leiðir pottþéttari en aðrar. Í fyrsta lagi get ég fengið mér kornungan, fjallmyndarlegan og dálítið þekktan kærasta. Eiginlega bara stirfnin í manninum mínum stendur í veginum, honum finnst þetta ekki sérlega góð hugmynd. Í öðru lagi gæti ég skroppið í fjölmiðlavæna áfengismeðferð en þyrfti reyndar að skandalísera töluvert meira fyrst. Það tekur alltaf drjúgan tíma. Fljótlegasta aðferðin til að hressa upp á ferilinn stendur tvímælalaust eftir: Að leka nokkrum senum úr heimagerðu kynlífsmyndbandi á netið og voilá! Hin dásamlega frægð sprettur fram eins og gorkúla á rigningardegi og ferillinn fær blússandi byr. Slóðin fylgir hér nema pistillinn sé ritskoðaður: Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórhildur Elín Elínardóttir Mest lesið Einfalt er best Linda Jónsdóttir Skoðun Börnin okkar eiga skilið nýeldaðan mat, ekki verksmiðjumat Sigrún Elísabet Unnsteinsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkur sem er ekki hægt að taka alvarlega Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hafró fer yfir eigin lokapróf og fær glimrandi einkunn Kjartan Sveinsson Skoðun Sósíalistar skila ekki auðu í húsnæðismálum Kópavogs Markús Candi Skoðun Íslensk útgerð í hættu vegna olíu – en lausnin gæti vaxið á ökrum Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Dánaraðstoð – byggð á fótfestu eða á hálum ís? Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Kvótinn: Þriðji valkosturinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Af hverju skipta félagasamtök máli – og langtíma fjármögnunin öllu? Eva Rós Ólafsdóttir Skoðun
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun