Upplýsingaveita um efnisinnihald matvæla 12. júlí 2007 04:00 Matís varð til með sameiningu þriggja ríkisstofnana sem hafa unnið að matvælarannsóknum og þróun í tengslum við matvælaiðnað: Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir á Keldnaholti og Rannsóknastofu Umhverfisstofnunar. Ólafur er til hægri, ásamt öðrum starfsmanni Matís. MYND/Anton
Á heimasíðu Matís, www.matis.is, er að finna gagnagrunn með upplýsingum um efnainnihald matvæla. „ÍSGEM er gagnagrunnur sem geymir upplýsingar um efnainnihald matvæla á íslenskum markaði og hefur nú í fyrsta sinn verið birtur á netinu,“ segir Ólafur Reykdal, verkefnastjóri hjá Matís ohf. „Við létum útbúa forrit sem flytur gögnin úr grunni fyrirtækisins og beint á heimasíðuna okkar www.matis.is.“ Að sögn Ólafs er hægt að leita eftir um það bil 900 fæðutegundum í ÍSGEM og finna upplýsingar um hverja og eina. „Eins og orkugildi hverrar eða nánar tiltekið kílókalóríur, fitu í matvælum, prótein, kolvetni og viðbættan sykur,“ útskýrir hann. „Líka upplýsingar um bætiefni, eins og vítamín og steinefni.“ Ólafur bendir á að ÍSGEM sé sniðugt meðal annars fyrir þá sem ætla að halda í við sig eða forðast ákveðin efni, eins og þeir sem vilja takmarka salt- eða sykurmagn í matnum hjá sér. Enn sem komið er sé þó ekki hægt að fletta upp óhollustu eða óæskilegum efnum eins og hann kallar þau, þar sem uppbyggingu gagnagrunnsins sé ekki lokið. „Svo er tiltölulegt auðvelt að nota gagnagrunninn,“ segir Ólafur. „Sumum gæti þótt upplýsingamagnið helst til mikið, en þá er hægt að nálgast upplýsingarnar á pdf-skjölum, sem eru vinstra megin á heimasíðunni. Með því að smella á þann lið, framkallast listi yfir fæðutegundir og síðan er hægt að skoða vörur í töflum á einföldu formi. Þar er líka auðveldara að bera saman vörutegundir.“ Birtingin á netinu er þó aðeins fyrsti liðurinn hjá Matís í að gera gögn um matvæli aðgengileg á vefsíðu fyrirtækisins, eins og fyrr sagði. Næst verða settar inn ítarlegri upplýsingar um matvæli og skýringartextar með þeim og upplýsingar um aðskotaefni fyrir fisk og fiskafurðir.
Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Menning Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Lífið samstarf Eldgos og elskhugar á frumsýningu Eldanna Lífið