Lagasmiður í ham 5. maí 2007 04:45 There is Only One Stormsker HHH Sverrir Stormsker hefur greinilega verið í ham þegar hann samdi lögin á There Is Only One. Hvert snilldarlagið rekur annað. Fín plata, en hefði orðið enn betri með ferskari útsetningum.
There Is Only One er tólfta plata Sverris Stormsker á rúmlega tuttugu ára ferli. Hún var tekin upp í Taílandi og hefur að geyma tólf lög og texta á ensku eftir Sverri sjálfan, en auk hans syngja á plötunni þau Myra Quirante og Gregory Carroll. Sverrir hannar umslagið og sér sjálfur um upptökustjórn og útsetningar og spilar öll hljóðfæri nema strengi, en um strengjaleik sér Thai Pumbui String Orchestra. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum eru textarnir samdir í ástarsorg og fjalla um heitrof og söknuð. Það hefur lengi verið vitað að Sverrir Stormsker er snillingur. Hann er öflugur lagasmiður og skemmtilegur textahöfundur. Sverrir er konungur power-ballöðunnar og There Is Only One byrjar einmitt á einni slíkri, You 've Got Hope If You've Got A Friend. Á plötunni skiptast svo á kraftmiklar ballöður sem Myra og Gregory fá að þenja sig í og rólegri og lágstemmdari lög sem Sverrir syngur flest sjálfur. Það er greinilegt að Sverrir hefur verið í miklum ham þegar hann samdi lögin á þessari plötu. Hvert snilldarlagið rekur annað. Persónulega er ég hrifnastur af Gray Love (minnir á Bítlana), Eternal Love og hinu tæplega tíu mínútna langa lokalagi Fake It Till You Break It. Þrjár perlur sem eiga skilið að fá mikla spilun. Það eru fleiri fín lög á plötunni og söngvararnir standa sig ágætlega. Það sem hins vegar skemmir fyrir henni að mínu mati eru útsetningarnar. Þær eru mjög klisju-kenndar og draga plötuna niður. Það er allt of mikill Eurovision/Idol stíll á þessu. Sverrir er lagasmiður á heimsmælikvarða og það væri virkilega spennandi að heyra lögin hans unnin af einhverjum af stóru pródúserunum í poppheiminum. Ég er sannfærður um að ef hann væri með góðan umba þá gæti hann lifað góðu lífi af því að selja frægum tónlistarmönnum lög. Robbie Williams hefði t.d. vel getað notað nokkur af þessum lögum á sinni síðustu plötu. Hún hefði batnað mikið við það. Setja Einar Bárðar í málið … Á heildina litið er þetta ágæt plata. Full af flottum lagasmíðum, en með ferskari og öflugri útsetningum hefði hún orðið enn betri.
Mest lesið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið „Stolt af því að hafa ekki gefist upp á sjálfri mér“ Lífið Yfir sig ástfangin og býr bæði á Spáni og Íslandi Lífið Friðrik Þór og Guðrún selja 225 milljón króna parhús í Hlíðunum Lífið Enn ástfangnari að sjá maka sinn í foreldrahlutverkinu Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira