Biljónsdagbók 22.4. 22. apríl 2007 00:01 OMXI15 var 7.829,43, þegar ég tók inn tvær parkódín forte í morgun, og Dow Jones stóð í 12.773 þegar skjálftinn hvarf úr höndunum svo að mér tókst að raka mig. Þriggja daga afmælisveislur í Karíbahafi skilja eftir sig ummerki í skrokknum jafnvel þó að sé sálrænt alveg indælt að skemmta sér í skattlausu umhverfi og taka í nösina öðru hverju. Gulli var flottur á því! Nú er eitt og hálft ár í afmælið mitt. Hvernig ég að toppa Gulla? Ég verð að starta góðu offsjor-fyrirtæki á bíssnessvænni Antíllaeyju. Sá einhverja Mustique á Gúgúlörðþ. Geta ekki verið neinir skattar á fyrirtæki á skeri sem heitir Mustique. Þeir hljóta að taka manni fagnandi þó að maður sé ekki grallari eins og Parsífal. Ég væri sáttur við þrjár herþotur í oddaflugi þegar vinirnir kyrja „hann á ammælídag". Mallí fengi í hnén. Baddi í ÓP-fjárfestingum er að komast niður á jörðina eftir landsfundinn hjá Sjálfstæðis. Hann var svo uppnuminn, góðviljaður - jafnvel í garð eldri borgara - og samfélagslega þroskaður fyrstu dagana eftir fundinn að ég var a freid um tíma að gengi ekki að hafa hann fyrir partner í Hrungnir Holdings. Ég stóð hann að því að borga í stöðumæli! En Baddi er búinn að taka sönsum. Það er þessi trausti grunnur sem Sjálfstæðismenn byggja á. Þeir ná alltaf að taka sönsum eftir landsfundi og halda áfram að stjórna landinu eins og ekkert hafi í skorist. Enginn minnist aftur á einhverja velferðarpakka sem soga allan kraft úr uppbyggingunni og einstaklingsfrelsinu. Við Baddi erum sammála um að Geir sé afskaplega nytsamur formaður. Það er ekki lítils virði að hafa formann sem er svona góðlegur og hefur svo hlýlega og traustvekjandi framkomu. Fólk efast ekki um eitt augnablik að Geir sé sólítt sjentílmaður yst sem innst sem gerir ekkert ljótt. Geir minnir svolítið á Óla Sveins sem við Baddi lékum okkur með á Melunum í gamla daga. Óli var svo góðlegur í framan og sakleysið uppmálað að við notuðum hann alltaf til að tala við gribbuna á 45 þegar hún æddi brjáluð út á tröppur eftir að við höfðum brotið tré í garðinum hennar eða snúið upp á handleggina á stráknum hennar. Við földum okkur á bak við ruslatunnur en Óli notaði góðviljaða svipinn og hlýlega brosið til að biðja gribbuna afsökunar. Það brást ekki að Óla tókst alltaf að róa gribbuna á 45. Þannig er Geir. Við Sjálftæðismenn megum gera hvað sem okkur sýnist en Geir róar gribburnar og fær jafnvel bissmark eða karamellu hjá þeim. Við vinnum kosningarnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun