Fullnaðarsigur Skerjafjarðarskáldsins 19. apríl 2007 12:30 Kristján Hreinsson stendur uppi sem sigurvegari í deilunni við Svein Rúnar Sigurðsson vegna ensks texta við sigurlagið í Eurovision.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins hefur Kristján Hreinsson Skerjafjarðarskáld unnið fullnaðarsigur í deilu sinni og Sveins Rúnars Sigurðsonar vegna Eurovsion-lagsins Valentine‘s Lost. Málavextir voru þeir að Kristján samdi íslenskan texta við lag Sveins Rúnars, Ég les í lófa þínum, sem Eiríkur Hauksson flutti til sigurs. Og höfðu þeir bundist fastmælum um að ef lagið sigraði myndi enskur texti Kristjáns vera notaður í Helsinki. Eftir að sigurvíman hafði runnið af þeim kom í ljós að Sveinn Rúnar hafði gengið á bak orða sinna, fengið Eurovision-skáldið Peter Fenner til að semja enskan texta og skilið Kristján eftir í sárum. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undi Kristján því ekki en hefur þó enn ekki viljað tjá sig um það sem fram hefur farið á bak við tjöldin. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur þó mikið gengið á og mun Sveinn Rúnar meðal annars hafa reynt að beita lygum. En hreyfing komst á málið þegar Sveinn Rúnar hugðist gefa út geisladisk með íslenskri útgáfu sigurlagsins og enskri útgáfu með texta Fenners og Kristjáns auk annars lags sem Skerjafjarðarskáldið samdi texta við. Og Kristján krafðist þess að lögbann yrði sett á útgáfuna vegna þess að ekki hafði fengist leyfi fyrir einum texta sem átti að fara á plötuna. Til að liðka fyrir útgáfunni neyddist Sveinn því til að fallast á alla skilmála Kristjáns; að hann fengi hlut í höfundarverkinu auk þess sem Sveinn greiðir honum laun fyrir þá vinnu sem Kristján innti af hendi við gerð enska textans sem ekki verður notaður. Og ku Kristján vera alsæll með þessa niðurstöðu þótt hann vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið að svo stöddu.
Mest lesið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fleiri fréttir Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira