Tónlist

Tvennir tónleikar Mezzoforte

Mezzoforte heldur tvenna tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Mezzoforte heldur tvenna tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld.

Mezzoforte heldur tvenna tónleika í Nýja sal Borgarleikhússins í kvöld. Tilefni tónleikanna er upptaka á DVD-diski sem verður gefinn út víða um heim í haust, en Mezzoforte heldur upp á 30 ára afmæli sitt á þessu ári.

„Við erum með tíu manna band með okkur. Við erum loksins búnir að manna í allar stöður, sem hafa bara verið skipaðar á plötum hingað til,“ segir Eyþór Gunnarsson. „Við erum í hörkuformi og erum alltaf að spila úti um allt.“

Fram undan hjá Mezzoforte er tónleikaferð um Evrópu sem hefst um miðjan apríl. Á næsta ári stefnir sveitin síðan á að halda upp á 25 ára afmæli slagarans Garden Party, sem vakti heimsathygli á sveitinni. „Það er enn þá gaman hjá okkur, það má þakka fyrir það og við erum enn þá að heimsækja ný lönd,“ segir Eyþór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.