Ekkert plat þótt fermingin sé 1. apríl 17. mars 2007 06:00 Sigurður fann fína skó í Kringlunni MYND/Hrönn
Eitt þeirra barna sem fermist í Bjarnarneskirkju í Hornafirði á pálmasunnudag er Sigurður Ragnarsson í Akurnesi. Hann brá sér í bæinn um síðustu helgi til að festa kaup á skóm fyrir ferminguna en jakkaföt var hann búinn að kaupa í versluninni Lóninu á Höfn. Fréttablaðið rakst á hann í Kringlunni ásamt Önnu Lilju systur sinni, búinn að finna skó í Skór.is sem honum leist vel á „Ég hugsa líka að Björg frænka okkar verði ánægð, þeir eru svo fínir," segir Anna Lilja. „Henni fannst að ég hefði átt að velja mér lakkskó þegar ég fermdist." Þegar farið er að spjalla við Sigurð kemur í ljós að það var fleira en fermingarskórnir sem drógu hann til borgarinnar því íþróttavörubúðirnar heilla. „Fótboltinn er aðaláhugamálið mitt og ég hef verið að skoða bæði takkaskó og markmannshanska," segir hann brosandi. Hann kveðst hafa æft fótbolta í sjö ár og skipa nú stöðu markmanns í fjórða flokki hjá Sindra sem er farinn að spila 11 manna bolta á stórum völlum. Áhuginn liggur víðar því drengurinn hefur líka gaman af búskap. „Ég fer yfirleitt í fjárhúsin á hverjum degi ef ég fer ekki út á Höfn á æfingar," segir hann. Sigurður er yngstur níu systkina. Hann á von á mörgum gestum í fermingarveisluna sem haldin verður heima. „Það koma líklega milli 100 og 150 gestir, þannig hefur það alltaf verið," segir hann og kveðst muna eftir fermingum tveggja bræðra sinna sem eru næstir honum í aldri. Hann telur að haldið verði í þær hefðir að bjóða upp á kaffihlaðborð með heimabökuðum kökum og aðspurður segir hann skyr-tertu með perum í mestu uppáhaldi hjá honum. Þar sem pálmasunnudag í ár ber upp á 1. apríl er Sigurður spurður í gamni hvort þetta verði nokkuð platferming. Þá hlær hann og svarar: „Nei, ég vona ekki og held það séu engar líkur á því." Hann kveðst hafa gengið reglulega til prestsins í vetur þar sem farið var yfir kafla úr bókinni Líf með Jesú. Einnig er hann langt kominn með að læra sálmana sem honum voru settir fyrir en messuskyldan er aðeins að þvælast fyrir. „Við eigum að fara í tíu messur yfir veturinn og ég náði fimm fyrir áramót en hef verið aðeins latari upp á síðkastið," segir hann en kveðst samt ágætlega trúaður.
Fermingar Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Sjá meira