Tónlist

Björk spilar á styrktartónleikum

Tónlistarkonan Björk Guðmundsson mun koma fram á styrktartónleikum á Nasa hinn 1. apríl ásamt tíu stúlkna blásturshljómsveit. Munu þau frumflytja lög af nýjustu plötu Bjarkar, Volta, sem kemur út 7. maí.

Á tónleikunum spila einnig Mugison, Lay Low, Pétur Ben, KK, Wulfgang, Magga Stína og Esja. Tónleikarnir eru haldnir af Forma, sem eru samtök átröskunarsjúklinga á Íslandi. Að sögn Ölmu Geirdal hjá Forma var Björk afar áhugasöm um að koma fram á tónleikunum. „Þegar við loksins komumst í samband við hana var hún mjög til í þetta. Þetta var auðveldara en maður bjóst við," segir Alma. „Það er yndislegt að fólk vilji taka þátt og vekja athygli með okkur á viðkvæmu málefni."

Tónleikarnir verða þeir fyrstu sem Björk heldur á þessu ári. Hún hefur þegar bókað sig á þó nokkrar tónleikahátíðir víðs vegar um heiminn, þar á meðal á Hróarskeldu, Glastonbury og Coachella.

Ekki er langt síðan Björk lagði lokahönd sína á Volta. Á meðal þeirra sem aðstoða hana á plötunni eru upptökustjórinn Timbaland, Antony úr hljómsveitinni Antony and the Johnsons, trommarinn Chris Corsano og Konono nr. 1. Auk þess semur Sjón einn texta á plötunni og er það fimmti textinn sem hann semur fyrir Björk.

Miðasala á styrktartónleikana á Nasa hefst í lok vikunnar á midi.is og í verslunum Skífunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.