Tónlist

Þrúgurnar ópera

Því er oft haldið fram að nútíminn eignist aldrei óperur sem lifa og fyrir bragðið sé alltaf gripið sama gamla dótið frá ýmsum skeiðum iðnbyltingarinnar. Nú hafa Ameríkanar eignast nýja óperu eftir Þrúgum reiðinnar eftir John Steinbeck. Sviðsgerð var leikin hér af verkinu 1991-2 við miklar vinsældir og var um sumt sniðin eftir Steppenwulf-útgáfunni frá Chicago. Kvikmynd Johns Ford er meistaraverk og svo er sagan ekki beinlínis kunn fyrir að sölna í tímans rás.

Óperuversjónin af Þrúgunum er eftir Ricky Ian Gordon og var frumsýnd í Minnesota-óperunni 10. febrúar sl. Þetta er stórsýning samin fyrir 50 flytjendur á sviði. Var sviðsetningin unnin í samstarfi við óperuhúsin í Houston og Pittsburg.

Umsagnir eru lofsamlegar en gagnrýnendur tala um amerískan stíl á verkinu, Copeland í bland við söngleikajahefð Broadway, Tónskáldi, dansahöfundi, textahöfundi takist vel að koma sögunni yfir og hún gæti gerst hvar sem er, segir Kaninn. Upphaflega var ætlunin að gera úr verkinu tveggja kvölda sýningu, svo mikið er efnið. En frá því var horfið. Nú er bara spurningin hvernig þessi ópera flyst til Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.