Tónlist

Kristján Þorvalds og Tommi ríða á vaðið

Nokkrir þeirra sem munu keppa um hylli gesta Sportbarsins.
Nokkrir þeirra sem munu keppa um hylli gesta Sportbarsins. MYND/Anton

„Það kom mér stórkostlega á óvart hversu margir vildu vera með. Þeir virðast miklu fleiri trúbadorarnir sem vilja koma út úr skápnum en við þorðum að vona,“ segir Friðrik Indriðason, blaðamaður og einn helsti skipuleggjandi Stóru trúbadorkeppninnar, sem hefst á Sportbarnum við Hverfisgötu í kvöld.

Tólf eru skráðir til keppni en þeir sem ríða á vaðið eru Kristján Þorvaldsson ritstjóri, Börkur Karlsson tónlistarkennari og Helga Völundardóttir en þrjár konur eru skráðar til leiks. Hátíðina opnar hins vegar Tómas Tómasson Stuðmaður sem verður þá þar með fyrsti bassatrúbador sögunnar. Hann er jafnframt verndari keppninnar.

Þrír keppa hvert kvöld og 24. mars verður svo úrslitakvöld keppninnar. Og mun þá troða upp, meðan atkvæði eru talin, South River Band með þá bræður Kormák og Óla Þórðar í broddi fylkingar. Sigurvegarinn fær 50 þúsund í verðlaun, annað sætið gefur þrjátíu þúsund en fjórða og fimmta tíu þúsund.

„Þetta er aðallega til gamans gert,“ segir Friðrik aðspurður hvort keppnin muni ekki setja djúpt spor í menningarsöguna. „En við erum nú þegar að undirbúa næstu keppni, Stóru standpínukeppnina, en þar er um að ræða uppistandskeppni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.