Tónlist

Í viðræðum vegna Eurovision

Tónlistarmaðurinn Morrissey er í viðræðum við BBC um að taka þátt í Eurovision.
Tónlistarmaðurinn Morrissey er í viðræðum við BBC um að taka þátt í Eurovision.

Morrissey, fyrrum söngvari The Smiths, verður hugsanlega fulltrúi Bretlands í Eurovision-söngvakeppninni í ár.

Morrissey lýsti fyrst yfir áhuga á að taka þátt í keppninni eftir að lag Bretlands, Teenage Life, lenti í fimmta neðsta sæti á síðasta ári. „Ég fylltist hryllingi en var samt ekki undrandi á því að lagið skyldi ekki ná langt,“ sagði Morrissey. „Hvers vegna báðu þau mig ekki um að taka þátt?“

Breska ríkisútvarpið, BBC, virðist hafa tekið Morrissey á orðinu því það hefur staðfest að það eigi í viðræðum við hann um að semja og hugsanlega flytja lagið í ár.

Morrissey, sem er 47 ára, sló í gegn með hljómsveitinni The Smiths á níunda áratugnum. Eftir að sveitin hætti árið 1987 hóf hann sólóferil sem hefur heppnast vel. Alls hefur hann komið tíu smáskífum á topp tíu-listann í Bretlandi.

Morrissey hefur áður verið orðaður við Eurovision-keppnina, eða þegar hann starfaði með fyrsta sigurvegara Bretlands í keppninni, Sandie Shaw, á níunda áratugnum. Til þess að komast í úrslitin þarf kappinn þó fyrst að komast í gegnum undankeppnina. Á meðal þeirra sem hafa dottið úr keppni þar í gegnum tíðina eru Antony Costa, fyrrum söngvari strákabandsins Blue, og ofurfyrirsætan Jordan.

Næsta Eurovision-keppni verður haldin í Finnlandi í maí, heimalandi síðustu sigurvegara, Lordi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.