Tónlist

Frábærir tónleikar

Paparnir létu ekki sitt eftir liggja á sviðinu í Háskólabíói á fimmtudaginn.
Paparnir létu ekki sitt eftir liggja á sviðinu í Háskólabíói á fimmtudaginn. MYND/Heiða

Landslið tónlistarmanna kom fram á tónleikunum til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna sem fram fóru í Háskólabíói á fimmtudagskvöld. Þetta var í áttunda skiptið sem tónleikarnir eru haldnir og söfnuðust heilar 2,4 milljónir króna.

 

Páll Óskar Hjálmtýsson er sannarlega meðlimur í landsliði poppara og söng af innlifun.
Fjöldi tónlistarmanna tók þátt í viðburðinum, en þar má meðal annars nefna Sálina hans Jóns míns, sem komið hefur fram á öllum átta tónleikunum, Birgittu Haukdal, Nylon, Gospelkór Reykjavíkur og Bubba Morthens.
ávísunin afhent Þéttsetinn salur fylgdist með þegar Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fékk 2,4 milljóna styrk frá Popplandsliðinu. Á átta árum hafa tónleikarnir aflað um 17 milljóna.

Ávísun, undirrituð af Íslenska popplandsliðinu, var afhent fulltrúum styrktarfélagsins á tónleikunum og má með sanni segja að popplandsliðið, sem og áheyrendur, geti verið ánægt með þennan árangur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.