Tónlist

Kylie og Furtado syngja dúett

Minogue er að ná sér á strik eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein.
Minogue er að ná sér á strik eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein.

Söngkonan Nelly Furtado ætlar að syngja dúett með áströlsku söngkonunni Kylie Minogue. Furtado gaf í sumar út plötuna Loose sem hefur m.a. að geyma lagið Maneater. Einnig er þar lagið Promiscuous sem hún söng með upptökustjóranum snjalla Timbaland.

Furtado hefur lengi ætlað að vinna með Kylie og nú eru viðræður hafnar um að þær flytji saman dúett. „Við höfum talað um þetta í dálítinn tíma. Við erum svipaðar á þann hátt að hún er dugnaðarforkur eins og ég," sagði hin 27 ára Furtado. Hún er jafnframt ánægð með það hvernig Kylie hefur tekist á við brjóstakrabbameinið sem hún greindist með fyrir nokkru síðan. „Það er frábært að hún skuli hafa snúið aftur og klárað tónleikaferð sína."

Furtado sló fyrst í gegn árið 2000 með laginu I"m Like a Bird sem var á plötunni Woah Nelly! Nýjasta plata hennar er sú þriðja í röðinni.

Kylie hefur lengi verið í sviðsljósinu. Hún vakti fyrst athygli í sjónvarpsþáttunum Nágrannar. Síðan þá hefur hún sungið mörg vinsæl lög á borð við The Loco-Motion, I Should Be So Lucky, Can"t Get You Out Of My Head, In Your Eyes og Slow, sem Emilíana Torrini samdi ásamt upptökustjóranum Mr. Dan. Var það tilnefnt til Grammy-verðlaunanna.

Furtado vill ólm syngja dúett með Kylie Minogue.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.