Gengu af fundi um varnarliðið 23. október 2005 17:50
Viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna um framtíð varnarsamstarfsins eru í uppnámi eftir að samningamenn Íslands gengu af fundi í gær. Þeim líkaði ekki nýjustu tillögur Bandaríkjamanna. Íslenskir embættismenn með Albert Jónsson, sendiherra í utanríkisráðuneytinu, í broddi fylkingar fóru til Washington eftir helgi og hófu í gær fundi með bandarískum kollegum. Ekki voru miklar væntingar fyrir fundinn og viðmælendur fréttastofunnar áttu fyrirfram ekki von á því að mikið þokaðist í samkomulagsátt, en deilt hefur verið um skiptingu kostnaðar. Þegar íslenska sendinefndin mætti til fundar í gær lagði bandaríska nefndin fram nýjar tillögur sem féllu vægast sagt í grýttan jarðveg. Albert Jónsson mun hafa stormað af fundi og sagt að þessar tillögur væru enginn grundvöllur frekari viðræðna. Opinberlega segja talsmenn bandarískra stjórnvalda að viðræðurnar hafi ekki farið fram með þeim hætti sem gert hafi verið ráð fyrir. Heimildarmenn fréttastofunnar innan bandaríska stjórnkerfisins segja framgang íslensku sendinefndarinnar ekki hjálplegan. Þrátt fyrir þetta áttu formenn sendinefndanna, Albert Jónsson og Robert Loftis, vara aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, að funda í einrúmi og stendur sá fundur enn. Að öllu óbreyttu á íslenska sendinefndin að koma aftur til Íslands á morgun.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Donald Trump forseti á nýjan leik Erlent „Afskaplega slæmar fréttir fyrir heimshagkerfið“ Innlent Horfði upp á fimmtán mínútna dauðastríð í bakgarðinum Innlent Þungur dómur fyrir að drepa son sinn og reyna að drepa annan Innlent Trump áhrifameiri en nokkru sinni fyrr Innlent Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Erlent Ákærður fyrir hnefahögg á Lúx sem leiddi til dauða Innlent Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Innlent Fleiri fréttir Fleiri konur mættu í krabbameinsskimun í ár en í fyrra Söguleg endurkoma, súr kosningavaka og baráttuhugur Andlát af völdum fíkniefna og lyfja aldrei verið fleiri „Það styðja allir sitt fólk 100 prósent“ Segja umboð samninganefndar afdráttarlaust Segist sá sami í útlendingamálum og hann hafi alltaf verið Bjóða út gerð landfyllinga við Fossvogsbrú Ákærður fyrir hnefahögg á Lúx sem leiddi til dauða Baráttufundur en enginn samningafundur Trump áhrifameiri en nokkru sinni fyrr Foreldrar krefjast breytinga á verkfallinu fyrir helgi Horfði upp á fimmtán mínútna dauðastríð í bakgarðinum Kosningapallborð: Kristrún, Sigurður Ingi og Inga í kosningagír „Afskaplega slæmar fréttir fyrir heimshagkerfið“ Trump snýr aftur með öruggum sigri Veðurviðvaranir í kortunum Þungur dómur fyrir að drepa son sinn og reyna að drepa annan Skrifa skilaboð með báðum og stýra með hnéi Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Grátbiðja deiluaðila að finna lausn Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Leggja til að stofna þjóðgarð í Dalabyggð Ástand skapaðist vegna skorts á armböndum Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Ógnaði barnsmóður sinni með haglabyssu Sjá meira