Sport

Tudor óákveðinn

Króatíski varnarmaðurinn Igor Tudor hjá Juventus virðist hafa snúist hugur með að fara sem lánsmaður til Bolton í ensku úrvalsdeildinni, því Sam Allardyce, knattspyrnustjóri félagsins segist ekkert hafa heyrt eða séð af varnarmanninum sterka. "Við erum kannski ekki nógu stór klúbbur fyrir hann. Kannski hefur hann fengið bakþanka og vill ekkert koma," sagði Allardyce, sem hefur viðurkennt að hafa reynt að fá Dietmar Hamann til Bolton frá Liverpool.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×