Úrvalið breytilegt dag frá degi 9. desember 2004 00:01 "
Allir hlutirnir eru framleiddir á Sólheimum en þar eru sex vinnustofur. Þetta eru mikið til einstakir hlutir og má segja að úrvalið í versluninni sé breytilegt frá degi til dags," segir Sveinbjörn Pétursson hjá jólamarkaðinum. "Þessi markaður hefur verið í mörg, mörg ár á mismunandi stöðum í gegnum tíðina. Nú erum við í kjallaranum á Iðu og vil ég koma sérstökum þökkum til Arndísar Bjargar Sigurgeirsdóttur fyrir að bjóða okkur að vera hér. Og auðvitað eigum við fastakúnna sem hafa heimsótt markaðinn á hverju ári og eru farnir að kíkja núna eftir jólagjöfum," segir Sveinbjörn og hvetur fólk til að koma snemma í jólagjafainnkaup. "Í síðustu vikunni fyrir jól er alltaf löng biðröð og engum finnst gaman að bíða í biðröð." Jólamarkaðurinn er opinn alla daga til jóla til klukkan 22 á kvöldin. Á Sólheimum er kertagerð, smíðastofa, leirgerð, listasmiðja, jurtastofa, vefstofa og garðyrkjustöðin Sunna og má kaupa allar vörur á markaðinum sem þar eru framleiddar. "Svo er þetta líka ódýrt. Við erum með margt undir fimm hundruð eða þúsund krónum," segir Sigurbjörn og bætir við að hér sé um gott málefni að ræða þar sem allur ágóði rennur til starfsins á Sólheimum. Lykilatriði á Sólheimum er endurvinnsla en allt sem hendi er næst er endurnýtt ef það nýtist ekki í daglegu amstri. Til dæmis er að finna óróa úr hjólaumgjörð, arinkubba úr dagblöðum og lampa úr hrútshorni. Því miður er lífrænt ræktaða grænmetið búið en seldar eru niðursuðuvörur og hamingjuegg úr frjálsum hænum á Sólheimum. Skemmtilegar skálar úr pappamassa - litríkar og fínar. Litlar á 300 krónur, miðstærðin á 600 krónur og bátalaga á 1.200 krónur.Sniðugar jólagjafir í smápakka. Fjallagrasasápa á 490 krónur.Öðruvísi og sérstök jólakort á 250 krónur stykkið.
Jól Mest lesið Les jólakveðjurnar í síðasta sinn Jól Ömmumatur sem klikkar aldrei Jól Ein um jólin - Alveg hryllileg tilhugsun Jólin Finnst hangikjötið gott Jól Hálfmánar Jól Sálmur 75 - Ó, Jesúbarn, þú kemur nú í nótt Jól Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 16. desember Jól Hallgrímur sem barn til barna Jól Unnur Birna: Hugsar til ömmu á jólunum Jól Engar jólagjafir hjá Sálinni Jól