Menning

Hundar á tískusýningu

Úlpur í felulitum, æfingagallar og fleira var meðal þess sem hundar sýndu á tískusýningu í miðborg Reykjavíkur í dag. Íslenskur hönnuður hundafatnaðar hyggur á útflutning.

Menning

Spegill, spegill segðu mér ...

Franskt rafeindafyrirtæki vinnur að hönnnun spegils sem ætlað er að sýna fólki hvernig það lítur út í framtíðinni. Þannig getur spegillinn út frá gefnum forsendum til dæmis sagt þeim er lítur í hann hvernig kyrrseta, skyndibitafæði og stöðug áfengisdrykkja eiga eftir að setja mark sitt á andlit viðkomandi.

Menning

Djass í stað jarms

Áttu í erfiðleikum með að sofna? Ef svo er, þá dugar skammt að telja kindur. Vísindamenn telja sig hins vegar hafa staðfest að það skipti sköpum að hlusta á róandi tónlist fyrir svefninn, til dæmis djass. Eftir aðeins fjörutíu og fimm mínútur eru flestir orðnir svo slakir að þeir eiga ekki í erfiðleikum með að festa blund.

Menning

Sólarljós gott gegn krabbameini

Allt er í heiminum hverfult. Þvert ofan í það sem áður var talið sýna tvær nýjar rannsóknir að sólarljós getur haft jákvæð áhrif gegn krabbameini og jafnvel stöðvað vöxt þess.

Menning

Barnabílstólar fyrir öll börn

"Við segjum að auknum þægindum fylgir oft meira öryggi," segir Árni Eyjólfsson eigandi barnavöruverslunarinnar Ólavíu og Oliver í Glæsibæ og vitnar þar í nýjan barnabílstól í versluninni. Tímaritið Magasín fylgir DV í dag.

Menning

Ekki bara hopp og hí

"Þetta er mín leið til að koma af stað almennilegri deitmenningu hérlendis," segir Helga Braga Jónsdóttir leikkona sem mun kenna á námskeiðinu Daður og deit hjá Mími-símenntun nú í febrúar og leggur áherslu á að það sé ætlað báðum kynjum.

Menning

Styrkir samband foreldris og barns

"Munurinn á okkar tónlistarnámi og öðru er að foreldrarnir eru alltaf með í tímunum hjá okkur," segir Anna Margrét Jóhannsdóttir hjá Suzuki tónlistarskólanum í Reykjavík. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Menning

Gengur bara betur næst

"Við þrjár erum duglegar að hittast enda búum við ekkert svo langt frá hvorri annarri," segir Birna Ósk Hansdóttir eiginkona Einars Arnar Jónssonar landsliðsmanns í handbolta. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum

Menning

Dóttirin algjör draumur

"Hún var bara stór miðað við hvað kúlan var lítil," segir Íris Björk Árnadóttir fyrrum fegurðardrottning sem eignaðist sitt annað barn 18. desember síðastliðinn. Tímaritið Magasín fylgir DV á fimmtudögum.

Menning

Líkamsrækt fyrir þroskaðar konur

Nafnið Pumping Iron kallar óhjákvæmilega fram mynd í hugann af líkamsræktarstöð þar sem karlmenn á borð við Schwarzenegger, massaðir og skornir, pumpa kófsveittir með lóðin. Í Dugguvoginum í Reykjavík er hins vegar líkamsræktarstöð með þessum nafni og þar innandyra er allt með öðrum og lágstemmdari brag.

Menning

Skortur á hjartamagnyli úr sögunni

Ný sending af hjartamagnyli er nú komin til landsins og í dreifingu, þannig að ekki kemur til skorts í lyfjaverslunum, samkvæmt upplýsingum frá Lilju Valdimarsdóttur sem starfar á markaðssviði lyfjafyrirtækisins Actavis.

Menning

Vilja franskt nafn á þættina

Idol-stjörnuleit heldur væntanlega áfram í franska sjónvarpinu en fjöldi skyldra þátta gæti horfið. Ástæða þessa eru nöfnin sem mörg hver eru ensk og það líkar allsherjarútvarpsráði fransmanna ekki. Ráðið, sem hefur einnig vald yfir dagskrá einkastöðva, krefst þess að þættir á borð við Popstar beri framvegis franskt nafn og heiti þá Vedettes de varietes til að mynda.

Menning

Offita getur falið krabbamein

Ný rannsókn gefur til kynna að líkamsþyngd getur haft áhrif á nákvæmni prófa sem notuð eru til að greina krabbamein í blöðruhálskirtli. Rannsóknin leiddi í ljós að því feitari sem mennirnir voru, því lægra var magnið af tilteknum mótefnisvaka sem mældur er til að komast að raun um hvort krabbamein sé að finna í blöðruhálskirtlinum.

Menning

Þróar sinn eigin stíl

"Tai Chi hentar mér mjög vel þar sem líkamlegar og andlegar æfingar sameinast. Auk þess þarf ekkert að hafa fyrir þessu, manni nægir smá pláss og getur jafnvel gert þetta heima hjá sér," segir David Lynch, sviðstjóri alþjóðasviðs Rauða Krossins, sem hefur stundað Tai Chi í næstum 15 ár.

Menning

Fór í lögfræðina af leti

Kristín Þóra lærir lögfræðina við Háskóla Íslands og er á öðrum vetri. Hún stendur á fertugu, er gift kona og þriggja barna móðir. "Auðvitað er maður ekki eins frjáls og áhyggjulaus og 21 árs stúdent en það er allt í lagi að læra þótt maður sé kominn af unglingsaldri.

Menning

Segir Norðmenn sjálfsánægða

Vellríkir, heilbrigðið uppmálað, lúðalegir, sjálfsánægðir og staðfastir í þeirri trú að þeir séu hinir útvöldu skandínavar. Þannig lýsir Johanne Hildebrandt, sænskur stríðsfréttaritari, nágrönnum sínum, Norðmönnum, í grein í Aftonbladet. Þar hneykslast hún yfir því að Norðmenn ætli að eyða tveimur milljörðum norskra kóna í hátíðarhöld í vor til að minnast þess að hundrað ár verða liðin frá því að Norðmenn fengu sjálfstæði frá Svíum.

Menning

Eitthvað gott í öllum bókum

Það er þétt setinn bekkurinn á Mokka. Í hverju sæti listamenn. Sumir viðurkenndir. Aðrir ekki. Margir framtíðarinnar. Fleiri nútíðarinnar. Skærasta stjarnan í flórunni, með hnausþykkan café latte í stórum bolla, er nýbakaður verðlaunahafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna á sviði fagurbókmennta; Auður Jónsdóttir.

Menning

Bíll fyrir barnið og golfsettið

Helgi Þorsteinsson fjárfestir hefur átt mikinn fjölda bíla. Hann segir ástæðuna aðallega þá að hann sé óákveðinn og vilji prófa sem flestar týpur. Síðast skipti hann út BMW-inum sínum fyrir Grand Cheroke-jeppling árgerð 2000.

Menning

Skemmtilegur bæði í sveit og borg

Ekið á Hyundai Santa Fe V6 EM Hyundai Santa Fe var strax vel tekið þegar hann kom á markað árið 1998 en í þessum mánuði var breytt útgáfa kynnt hjá B&L. Á síðasta ári eignaðist Santa Fe minni bróður, Tucson, en stóri bróðirinn, Terracan er fullvaxinn jeppi.

Menning

Hentar við kaup og sölu bifreiða

Bifreiðaskoðun Frumherja við Hestháls býður viðskiptavinum sínum upp á ástandsskoðun bifreiða, sem hentar sérstaklega þeim sem standa í kaupum eða sölu á bifreiðum. "Við ástandsskoðun er bifreiðin meðal annars prufukeyrð og tekin í gegnum fjöldann allan af prófum sem gefa nákvæma mynd af ástandi hennar.

Menning

Góður svefn bætir minni

Tvær nýlegar svefnrannsóknir benda til þess að góður svefn bæti minni umtalsvert og auki hæfni til þess að leysa vandamál. Í rannsóknunum sem læknar og taugasálfræðingar í Bandaríkjunum og Þýskalandi gerðu voru þátttakendur ýmist látnir glíma við talnaþrautir eða rifja upp hluti, annars vegar eftir tólf tíma vöku og hins vegar eftir góðan nætursvefn.

Menning

Nálgumst það sem við viljum

"Þetta námskeið er fyrir alla aldurshópa. Þessi spurning hefur fylgt manni síðan í barndómi og hún fylgir manni eiginlega alla ævina þótt maður finni sér sinn stað í lífinu ef svo má segja. Það eru margir sem eru ekki alveg vissir um hvað þeir vilji gera og langar ef til vill að gera eitthvað allt annað í lífinu.

Menning

Hafa allir migið í saltan sjó

Stýrimannaskólinn keppti í Gettu betur í fyrsta skipti í ár. Hann er elsti skólinn í keppninni, 113 ára og þótt hann dytti út í fyrstu umferð þá kom ferskur blær inn í keppnina með hinum verðandi sjómönnum

Menning

Sjálfstæð hugsun lykilatriði

"Nýja námsskráin sem kom út árið 1999 var lögð til grundvallar þessu námsefni, þar sem mikil áhersla er lögð á að nemendur skilji þau viðfangsefni sem þeir fást við og noti sína eigin hugsun," segir Jónína Vala.

Menning

Meistarar í reikningshaldi

Meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun hefur göngu sína í Háskólanum í Reykjavík í haust á vegum þess skóla og Tækniháskóla Íslands. Það er til undirbúnings undir löggildingu endurskoðenda og hentar einnig þeim sem vilja sérfræðiþekkingu á sviði reikningshalds í fyrirtækjum, að sögn Þorláks Karlssonar,

Menning

Hagar seglum eftir vindi

"Á vélbát tekur maður ákveðna stefnu og keyrir bara þangað en á skútu er það allt öðruvísi því ferðin fer alveg eftir vindinum, og maður hagar seglum eftir vindi," segir Benedikt H. Alfonsson, skólastjóri Siglingaskólans

Menning

Trúir ekki á megrunarkúra

"Ég er reyndar ekki í ræktinni núna þó að ég myndi glöð vilja segjast fara alla daga. En ég er að safna mér fyrir korti í Nordica. Ég prófaði það í tvo mánuði og fannst það æðislegt. Ég þarf að hafa dekur með ef ég fer í ræktina - annars fer ég ekki.

Menning

Skrekkur er hafinn

Skrekkur, hæfileikakeppni ÍTR og mikil hátíð grunnskólanema, hófst í gærkvöldi og heldur áfram í kvöld og á morgun. Óhætt er að segja að Skrekkur sé fyrsta tækifæri fyrir listamenn framtíðarinnar að koma fram og þarna hafa menn eins og Sveppi stigið sín fyrstu skref.

Menning

Mikilvægt að ná góðri þáttöku

"Þessir spurningalistar eru liður í geysilega umfangsmikilli norrænni könnun sem fer þannig fram að 80.000 konur á fjórum Norðurlöndum fá senda spurningalista um lífshætti og heilsufar. Ísland er með jafnfjölmennt úrtak og hin Norðurlöndin," segir Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands.

Menning