Heimsmarkmiðin

Utanríkisráðuneytið úthlutar 213 milljónum til verkefna félagasamtaka
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að úthluta alls um 213 milljónum króna til verkefna félagasamtaka á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarverkefna.

Utanríkisráðherra: „Við getum verið stolt af okkar starfi“
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fór um verkefnasvæði íslenskrar þróunarsamvinnu í gær á öðrum degi heimsóknar sinnar til Malaví. "Það er einstök upplifun að sjá með eigin augum hversu miklu framlag Íslendinga hefur skilað."

Fjórða hvert barn býr við stríð eða aðrar hörmungar
Eitt af hverjum fjórum börnum í heiminum býr á svæði þar sem geisar stríð eða aðrar hörmungar. Milljónir barna skortir öryggi og vernd. Vaxandi ofbeldi og árásir hafi stóraukið þörfina á neyðararaðstoð. UNICEF ítrekar að alþjóðasamfélagið þurfi að skuldbinda sig af fullri alvöru til að vernda börn.

Ísland veitir yfir 20 milljónir í mannúðaraðstoð til flóttafólks frá Venesúela
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa með stuðningi utanríkisráðuneytisins ákveðið að aðstoða flóttafjölskyldur frá Venesúela í Kólumbíu. Ráðuneytið styrkir mannúðarverkefni SOS um tæpa 19 og hálfa milljón króna og er mótframlag SOS rúm ein milljón króna.

Brottfall nemenda nánast horfið eftir stuðning Íslendinga
Fyrir fáeinum árum voru aðeins fjórar nothæfar kennslustofur í Milimbo grunnskólanum í Mangochihéraði í Malaví. Allir nemendur skólans eru nú komnir undir þak, þökk sé stuðningi héraðsyfirvalda í Mangochi gegnum íslenska þróunarsamvinnu. Formaður og annar varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis heimsóttu skólann.

Fæðingardeild opnuð í Kadango: Mikið framfaraskref í afskekktu héraði í Malaví
Átta börn fæddust á einum sólarhring skömmu eftir opnun fæðingardeildar í Kadango, einum afskekktasta hreppi Mangochi héraðs í Malaví. Nýja fæðingardeildin er fjármögnuð af íslenskum stjórnvöldum

Meira en 145 þúsund börn Róhingja fara nú í skóla - mörg í fyrsta sinn
Meira en 145 þúsund börn Róhingja í flóttamannabúðunum í Cox's Bazar hefja nú skólagöngu í Bangladess á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Börnin flúðu ofbeldi og ofsóknir í heimalandi sínu Mjanmar.

Þörf á vetrarfatnaði í flóttamannabúðum í Líbanon
Starfsfólk SOS Barnaþorpa dreifðu í síðustu viku hlýjum vetrarfatnaði til sýrlenskra flóttafjölskyldna í Bekaa-dalnum í Líbanon. Mikil þörf er á hlýjum vetrarfatnaði en óvenju kalt hefur verið á svæðinu.

UN Women: Áhersla á götukynningar á 30 ára afmæli landsnefndarinnar
Öflugur hópur ungs fólks á vegum UN Women mun ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starfsemi UN Women fyrir landsmönnum og bjóða þeim að taka þátt í starfinu í tilefni 30 ára afmælis landsnefndarinnar.

„Aldrei pláss fyrir hatursfulla orðræðu, umburðarleysi og útlendingahatur“
Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri SÞ sagði í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að hugmyndafræðileg átök ættu sér stað og brýnt væri að ráðast að rótum ótta fólks í síbreytilegum heimi.

Íslenskur stuðningur við börn í flóttamannabyggðum Úganda
Tæplega 20 þúsund börn í norðurhluta Úganda koma til með að njóta framlags frá utanríkisráðuneytinu sem hefur ákveðið að styrkja Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) í verkefnum sem tengjast vatns-, salernis- og hreinlætismálum með tæplega 120 milljóna króna framlagi.

Afríkubúar vilja helst góða atvinnu og hagvöxt
Góð atvinna og hagvöxtur, er efst á óskalista Afríkubúa þegar þeir eru spurðir álits á mikilvægustu Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Afrobarometer lagði spurninguna fyrir almenning í 34 Afríkuríkjum.

Tæpar 120 milljónir króna til að bólusetja börn í Malaví
Hundruð þúsunda barna í Malaví verða bólusett gegn öllum helstu banvænum sjúkdómum eftir að íslensk stjórnvöld ákváðu að veita GAVI samtökunum tæpar 120 milljónir króna til að herða á bólusetningum malavískra barna.

Mannfjölgun í Malaví 35% á átta árum
Hagstofan í Malaví leiddi framkvæmd manntals í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) með tæknilegum stuðningi Manntalsskrifstofu Bandaríkjanna. Kostnaðaráætlun fyrir manntalið og úrvinnslu gagna nemur um 22,5 milljónum Bandaríkjadala. Íslensk stjórnvöld leggja fram tæpar eitt hundrað milljónir króna og sá stuðningur mun einkum nýtast við úrvinnslu gagna og uppsetningu gagnamiðlunarkerfis.

Níu umsóknir bárust um styrki úr Samstarfssjóði við atvinnulífið
Samstarfssjóður við atvinnulíf um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum hefur yfir að ráða allt að 100 milljónum króna. Níu umsóknir bárust til sjóðsins. Áskilið er að styrkt verkefni skuli vera til hagsbóta í viðkomandi landi og stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í fátækum ríkjum heims.

Þrjátíu þúsund flóttamenn látnir á fimm árum
Rúmlega þrjátíu þúsund flóttamenn létust á árunum 2014 til 2018 samkvæmt yfirliti alþjóðlegrar stofnunar um farandfólk (IOM). Verulega skortir á opinber gögn og upplýsingar um dauðsföll þeirra sem eru á faraldsfæti. Því telur stofnunin tölurnar lágmarksáætlun.

Umrót á alþjóðamörkuðum og spáð örlitlum samdrætti
Landsframleiðsla á heimsvísu kemur til með að aukast um 2,9% á þessu ári. Það er örlítill samdráttur frá nýliðnu ári. Hlutfallið mun verða 2,8% næstu tvö árin. Þetta kemur fram í spá Alþjóðabankans sem gaf í gær út árlega skýrslu um efnahagshorfur í heiminum.

Mansal í heiminum fer vaxandi
Mansal fer vaxandi í heiminum og verður sífellt ógeðfelldara samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Kynferðisleg misneyting fórnarlamba helsti drifkrafturinn. Börn eru 30% þeirra sem seld eru mannsali, stelpur miklu fleiri en strákar.

Ekkert barn ætti að vera fórnarlamb ofbeldis, ótta eða áfalla
Hundrað árum eftir lok fyrri heimsstyrjaldar eru grundvallarmannréttindi og lög sem eiga að vernda börn gegn hörmulegum afleiðingum stríðsátaka, stanslaust brotin án nokkurra refsinga. Framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children á Íslandi segir ríkisstjórnir um allan heim verða að binda endi á óásættanlegt ofbeldi.

Óvænt afsögn forseta Alþjóðabankans
Jim Young Kim forseti Alþjóðabankans hefur sagt upp störfum. Afsögn hans kom stjórnarmönnum og starfsmönnum bankans á óvart. Jim hyggst hefja störf hjá fjárfestingafyrirtæki. Ráðningatímabili hans hjá Alþjóðabankanum átti að ljúka eftir þrjú ár.

Rauði krossinn og Sýn brúa stafræna bilið í Afríku
Sýn og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér stuðning Sýnar við alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins. Landsfélögum Rauða krossins og Rauða hálfmánans í fimmtán Afríkuríkjum verður veitt aðstoð við að bæta þekkingu og búnað í upplýsinga- og samskiptatækni.

Besta fjárfestingin að enda barnahjónabönd og tryggja menntun unglingsstúlkna
Að enda barnahjónabönd og ótímabærar barneignir sem þeim fylgja, auk þess að tryggja menntun stúlkna til átján ára aldurs er besta fjárfestingin í Malaví í dag. Þetta kemur fram í pistli Ágústu Gísladóttur, forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongve, sem hún skrifar fyrir Heimsljós.

Ótrúleg lífsreynsla að starfa í Cox Bazar
"Ótrúleg lífsreynsla,“ segir Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur sem nýkomin er heim úr flóttamannabúðum Róhingja í Cox Bazar í Bangladess.

UN Women: Umræða um kynbundið ofbeldi bar hæst á árinu
"MeToo byltingin hefur svo sannarlega opnað umræðuna um kynbundið ofbeldi gegn konum og stendur óneitanlega upp úr þegar litið er til árangurs í jafnréttismálum á árinu,“ segir í áramótagrein UN Women á Íslandi.

Nýársheit að tryggja öllum börnum rétt til að lifa
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) bendir á að um leið og hverju nýfæddu barni er fagnað ættu allar þjóðir heims jafnframt að setja sér það nýársheit að tryggja rétt allra barna til að lifa og dafna.

Heimsljós 2018: Mest lesnu fréttirnar
Eitt hundrað milljóna króna framlag utanríkisráðuneytisins til neyðaraðstoðar í Jemen var mest lesna fréttin í Heimsljósi á árinu. Önnur mest lesna frétt ársins var um leit ráðuneytisins að unglingi fæddum árið 2003 til að taka þátt í kynningu á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Heimurinn bregst börnum á átakasvæðum
Vopnaðar sveitir skirrast ekki við að fremja alvarleg brot gegn börnum án þess að gerendur séu dregnir til ábyrgðar, segir í fréttatilkynningu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Framtíð milljóna barna í stríðshrjáðum löndum í hættu.

Söfnuðu 47,5 milljónum til hjálparstarfs í Jemen
Neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi vegna neyðarástands í Jemen lauk í gær. Söfnunin sem hófst í byrjun nóvember gekk framar vonum og nemur framlag Rauða krossins alls um 47,5 milljónum króna sem fer til lífsbjargandi hjálparstarfs í Jemen.

Vanræktasta neyðin í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó
Kongó er í efsta sæti lista fréttaveitu Reuters yfir "vanræktustu neyðina" en Reuters leitar árlega álits mannúðarsamtaka og birti í morgun niðurstöðu könnunarinnar. Þetta er annað árið í röð sem Kongó er efst á listanum en þar geisar bæði stríð og ebólufaraldur.

Markmiðið er matur fyrir tuttugu þúsund börn í Jemen í heilan mánuð
Neyðarsöfnun Rauða krossins vegna yfirvofandi hungursneyðar í Jemen lýkur á föstudag. Þegar hefur safnast fjárhæð sem dugar fyrir mat fyrir 14 þúsund börn í Jemen í heilan mánuð. Stefnt er á að safna fyrir mat fyrir 20 þúsund börn.