Innlent

Þessi eru til­nefnd til menntaverðlauna

Íslensku menntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk séstakra hvatningarverðlauna.

Innlent

Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið

Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins.

Innlent

Ögur­stund í kjara­samninga­málum

Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif.

Innlent

Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju

Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi.

Innlent

Vill breyta um­deildum gatna­mótum

Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. 

Innlent

„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar segir íslensk stjórnvöld vilja innleiða bókun 35 til að tryggja að íslenskir borgarar og fyrirtæki fái fullan rétt sem EES-samningurinn færir þeim. Sigríður Á. Andersen, þingkona Miðflokksins, telur að íslenska ríkið eigi að láta reyna á dómsmál fyrir EFTA-dómstólnum um innleiðingu EES-löggjafar á Íslandi áður en þingið tekur bókun 35 til umræðu. Komist dómstóllinn að því að íslenska ríkið hafi brotið á EES-samningnum sé komin upp önnur staða og þá þurfi að ræða það sérstaklega.

Innlent

Ís­lenskir karl­menn flytji inn konur og haldi þeim sem kyn­lífs­þrælum

Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir nauðsynlegt að verklag í skilnaðarmálum sé endurskoðað og þá sérstaklega í sáttameðferð hjá sýslumanni. Þegar þolendur greini frá ofbeldi í lögskilnaðarferli eigi að setja málin í sérstakt ferli og alls ekki í sáttameðferð. Það þurfi að gera áhættumat á gerendum og afleiðingum þess að þeir fái að halda áfram umgengni, fyrir bæði þolendur og börn sem koma að málinu. 

Innlent

Skóla­börn sáu nakinn hótelgest úr skóla­stofunni

Börn í 9.–10. bekk í Stórutjarnarskóla í Þingeyjarsveit voru í kennslustund þegar þau sáu út um gluggann nakinn hótelgest á Hótel Tjörnum í næsta húsi. Sveitarstjórn hefur brugðist við en vonast til að endanleg lausn finnist í málinu áður en starfsemi hótelsins hefst á ný í vor.

Innlent

Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt

Hið árlega pestatímabil hefur leikið fjölda landsmanna grátt en Læknavaktin tekur á móti hundruðum skjólstæðinga á hverjum degi þessa stundina. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mikilvægt að fólk láti reyna á öll húsráð, slökun og annað sem því býðst heima fyrir áður en það geri sér ferð á heilsugæslur eða Læknavaktina. Það séu bæði kvef- og magapestir að ganga fólks á milli.

Innlent

Röð skjálfta ekki á­hyggju­efni út af fyrir sig

Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð.

Innlent

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 

Innlent

„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“

Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. 

Innlent

„Auð­vitað alltaf erfitt að koma að svona vett­vangi“

Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.

Innlent

Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna.

Innlent

Höfuð­borgar­svæðið skalf

Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin.

Innlent