Innlent
210 211 212 213 214 215 216 217 218 … 334 ›
Pallborðið: Fortíðardraugar og framtíðaráskoranir nýrrar ríkisstjórnar Ráðherrar, gamlir og nýir, taka við lyklavöldum í fjórum ráðuneytum í dag, eftir myndun nýrrar ríkistjórnar í kjölfar samningaviðræðna síðustu daga. Innlent 10.4.2024 08:57
„Ef ekki er markaður fyrir kjötið er efnahagslegur ávinningur enginn“ Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, vildi ekki tjá sig um það í gær hvort hún myndi heimila eða banna hvalveiðar. Hún var þó afdráttarlaus um afstöðu sína á þingfundi í febrúar árið 2019. Innlent 10.4.2024 08:28
Vaktin: Bjarni tekur við lyklunum úr hendi Katrínar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun taka við lyklunum að forsætisráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur í Stjórnarráðshúsinu klukkan 8:30 í dag. Hægt er að fylgjast með í spilaranum að neðan og á Stöð 2 Vísi. Innlent 10.4.2024 08:03
Óku í hlið bíls til að stöðva ofsaakstur á Akranesi Ungur karlmaður hlaut á dögunum þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna tveggja brota. Annars vegar var hann ákærður fyrir að hrækja á andlit lögreglumanns. Hins vegar var honum gefið að sök að stela bíl og aka honum ansi glæfralega, þangað til lögregla stöðvaði för hans með því að keyra í hlið bílsins. Innlent 10.4.2024 08:00
Óánægja með tilraunaverkefni í frístund: „Okkar hópur logar bara, á okkar leikskóla“ Foreldrar barna sem eiga að fara beint í frístund eftir leikskólaútskrift í vor eru einhverjir ósáttir við stuttan fyrirvara á tilraunaverkefninu. Þá finnst þeim kostnaður of mikill, óheppilegt að frí sé ekki á sama tíma og í leikskóla og of lítið samráð við bæði foreldra og fagaðila. Innlent 10.4.2024 06:45
Yrði „algjör niðurlæging fyrir Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir það myndu verða algjör niðurlæging fyrir Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn ef það kæmi í ljós að þeir hefðu ekki tryggt það í viðræðum síðustu daga að hvalveiðar verði leyfðar að nýju. Innlent 10.4.2024 06:29
Telur málin miklu fleiri en menn grunar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra segir tækifæri fólgin í öllum breytingum. Hún tjáði sig um komandi verkefni áður en hún fór á ríkisráðsfund á Bessastöðum fyrr í kvöld. Innlent 9.4.2024 23:19
Friðrik Þór fer fyrir dómnefnd á kvikmyndahátíð í Moskvu Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi mun fara fyrir dómnefnd á Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðinni í Moskvu. Vestræni kvikmyndaiðnaðurinn hefur ákveðið að sniðganga keppnina að mestu leyti vegna innrásar Rússlands inn í Úkraínu. Innlent 9.4.2024 23:04
Dvölin í Búlgaríu dýrmæt reynsla á Bessastöðum Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi, einnig þekkt sem ísdrottningin, segir dvöl sína í Búlgaríu hafa veitt henni dýrmæta reynslu í landkynningum. Hún hafi starfað sem eins konar heiðursráðsmaður Íslands þar úti og telur að það hafi þjálfað hana vel til að gegna embætti forseta. Innlent 9.4.2024 22:39
Alveg óvíst hvort ríkisstjórnin lifi kjörtímabilið af Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir jafnvel meiri styr munu standa um ríkisstjórnina undir forystu Bjarna Benediktssonar en Katrínar Jakobsdóttur. Stólaskiptin feli ekki í sér mikla efnisbreytingu en mikla ásýndarbreytingu sem hann telur að geti reynst ríkisstjórninni erfið þegar fram í sækir. Innlent 9.4.2024 22:07
Myndaveisla: Endurnýjuð ríkisstjórn hefur verið mynduð Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar var formlega mynduð í kvöld á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Þá endurstaðfesti Guðni Th. Jóhannesson lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur úr forsætisráðuneytinu. Innlent 9.4.2024 22:06
Þrír teknir höndum á Bessastöðum Blásið var til mótmæla vegna ríkisráðsfundar þar sem ný ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók við völdum. Roði, félag ungra sósíalista og aðstandendur Samstöðutjaldsins stóðu að mótmælunum. Samskipti mótmælenda og lögreglu voru ekki með öllu friðsæl og þrír voru handteknir. Innlent 9.4.2024 21:56
Katrín á leið í „óvissuferð“ Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra gekk út af ríkisráðsfundi eftir að hafa verið í ríkisstjórn með hléum frá árinu 2009. Hún segir tilfinninguna stórkostlega og að hún sé alsæl við að fara í það sem hún kallar „dálitla óvissuferð.“ Innlent 9.4.2024 20:36
Ávarp Guðna: Greinamunur á að vera skráður á Ísland.is og vera í framboði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði fjölmiðla að loknum fyrri ríkisráðsfundi af tveimur sem fara fram á Bessastöðum í kvöld. Innlent 9.4.2024 20:28
Mótmælt við Bessastaði Nokkur fjöldi fólks kom saman við afleggjarann að Bessastöðum til að mótmæla nýrri ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Ríkisráðsfundur hófst upp úr klukkan sjö í kvöld og tók Bjarni formlega við embætti forsætisráðherra. Innlent 9.4.2024 20:21
Fjölgun atvika gæti verið jákvætt merki Forstjóri lækninga á Landspítalanum segir að sífellt fleiri ábendingar berist um að eitthvað hafi hugsanlega farið úrskeiðis í starfseminni. Þjónustan sé þó ekki að versna heldur öryggismenning að aukast. Ákveðið hefur verið að ráða talsmann sjúklinga á spítalann. Innlent 9.4.2024 20:00
„Ekki biðja um að þetta sé auðvelt“ Bjarni Benediktsson, sem verður skipaður forsætisráðherra á eftir, segir að það liggi vel á sér. Hann segir að sitt fyrsta verk í nýja ráðuneytinu verði að stilla sama strengi við aðra ráðherra endurnýjaðrar ríkisstjórnar. Honum þyki mikilvægt að byrja vel. Innlent 9.4.2024 19:32
Sverðin slíðruð í orku, útlendinga- og lögreglumálum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Bjarni og ráðherrar í ráðuneyti hans voru settir í embætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem hófst klukkan sjö í kvöld. Innlent 9.4.2024 19:20
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum Ráðherrar í verðandi ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar mættu allir sem einn á Bessastaði í kvöld þar sem tveir fundir fóry fram. Bein útsending var frá Bessastöðum á Vísi og Stöð 2 Vísi. Innlent 9.4.2024 18:12
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjarni Benediktsson segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Ný ríkisstjórn verður formlega sett í embætti á Bessastöðum í kvöld. Við förum yfir atburði dagsins og verðum í beinni þaðan. Innlent 9.4.2024 18:09
Vilja flytja heilt raðhús úr Grindavík í Garðinn Verktakafyrirtækið Kimar ehf. hefur óskað eftir lóð í Garði fyrir nýtt fimm íbúða einingaraðhús, sem yrði flutt af grunni úr Grindavík á nýja lóð. Innlent 9.4.2024 16:53
Boða til mótmæla við Bessastaði Félagið Roði - Ungir Sósíalistar og fólkið sem stóð að samstöðutjaldinu fyrir Palestínumenn á Austurvelli hafa boðað til mótmæla við Bessastaði klukkan 19 í kvöld vegna nýrrar ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar. Félögin vilja alla ríkisstjórnina burt. Innlent 9.4.2024 16:50
Jón Viðar skrifstofustjóri á skrifstofu opinberra fjármála Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Jón Viðar Pálmason skrifstofustjóra á skrifstofu opinberra fjármála. Innlent 9.4.2024 16:46
Tæplega hálf öld síðan Framsókn stýrði ríkisfjármálum Sigurð Ingi Jóhannsson, sem tekur við fjármálaráðuneytinu í kvöld, segir engar stórar breytingar í farvatninu. Fjármálaáætlun sé tilbúin og á leið fyrir þingið. Þá segir hann að 45 ár séu síðan Framsóknarmaður hélt um stjórntaumana í ríkisfjármálunum. Innlent 9.4.2024 16:26
Ráðherrar fjölmenna á Bessastaði klukkan 19 Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í kvöld á Bessastöðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Innlent 9.4.2024 16:05
Forstjóri Persónuverndar brýtur persónuverndarákvæði Forstjóri Persónuverndar er með Facebook-auglýsingu þar sem flest persónuverndarákvæði sem hugsast getur eru brotin. Innlent 9.4.2024 16:03
Gagnrýnir landlækni harðlega og vill fá umboðsmann sjúklinga Formaður hagsmunasamtaka í heilbrigðissþjónustu gagnrýnir Landlækni harðlega og segir embættið sitja beggja vegna borðs þegar grunur er um mistök í heilbrigðisþjónustu. Nauðsynlegt sé að stofna embætti umboðsmanns sjúklinga. Þá telur hún ný lög um Landlækni draga úr réttarstöðu sjúklinga. Innlent 9.4.2024 15:57
Hraunbreiðan orðin rúmir sex ferkílómetrar Þrátt fyrir að dregið hafi úr krafti eldgossins eru ekki merki um að heildar kvikuflæði frá dýpi sé að minnka. Það er samanlagt magn sem safnast saman undir Svartsengi auk þeirra kviku sem flæðir upp á yfirborð í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 9.4.2024 15:46
Vinstri græn ekki að gleypa eitraða pillu Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra og formaður VG segir ríkisstjórnarflokkana þrjá hafa sest niður um helgina, eftir að Katrín Jakobsdóttir tilkynnti framboð sitt til forseta, með það að markmiði að halda samstarfinu áfram. Innlent 9.4.2024 15:46
Framsókn geti ekki lengur falið sig á bak við „stóra bróður“ Formaður þingflokks Pírata fagnar því að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr fjármálaráðuneytinu með uppstokkun á ríkisstjórninni. Nú geti Framsóknarflokkurinn hins vegar ekki lengur falið sig á bak við að „stóri bróðir“ komi í veg fyrir að hann uppfylli kosningaloforð sín. Innlent 9.4.2024 15:40