Innlent „
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 334 ›
„Varnargarðarnir stóðu sig mjög vel“ Ármann Höskuldsson eldfjallasérfræðingur segir varnargarðana hafa haldið vel þegar hraun úr eldgosinu við Sundhnúk flæddi að í dag. Sýni af hrauninu séu á leið úr landi. Innlent 29.5.2024 21:49
„Þetta hefur ekkert að gera með mína pólitísku hugsjón“ Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra segist ekki vera viljandi að bíða fram yfir kosningar með að taka ákvörðun um leyfisveitingu til hvalveiða. Ákvörðun kunni að liggja fyrir í lok næstu viku, og muni ekki byggja á hennar pólitísku hugsjónum. Kallað var eftir umsögnum fjölda hagaðila og stofnanna fyrst í gær. Innlent 29.5.2024 21:01
Hraun flæðir yfir Nesveg Hraunið frá eldgosinu sem hófst við Sundhnúk á fyrsta tímanum í dag flæðir yfir Nesveg og Grindavíkurveg. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari myndaði hraunflæðið í kvöld. Innlent 29.5.2024 20:55
Fyrstu atkvæðakassarnir opnaðir í Ráðhúsinu „Þetta fer allt vel að lokum,“ segir oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík sem tók við fyrstu utankjörfundaratkvæðunum til flokkunar í Ráðhúsinu í morgun. Nú þegar þrír dagar eru til kosninga er kjörsókn töluvert lakari en í síðustu forsetakosningum. Innlent 29.5.2024 20:01
Eina leiðin inn í Grindavík um Suðurstrandarveg og innviðir í hættu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum líst illa á eldgosið nærri Sundhnúki. Hraunið, sem flætt hefur yfir bæði Grindavíkurveg og Nesveg liggi ofan í görðunum og innviðir séu bersýnilega í hættu. Innlent 29.5.2024 19:32
„Þetta er mjög erfiður dagur hjá okkur“ Icelandair sagði upp um tíu prósent af skrifstofufólki félagsins í dag, alls átta tíu og tveimur einstaklingum. Forstjóri félagsins segir þetta erfiðan dag en krefjandi rekstrarumhverfi, mikil verðbólga og hækkandi launakostnaður hafi kallað á hagræðingaraðgerðir. Innlent 29.5.2024 19:01
Stærri atburður en við höfum séð áður Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir að sérfræðingar hafi beðið eftir eldgosinu sem hófst í morgun vegna stöðugrar kvikusöfnunnar og landris undir Svartsengi. Innlent 29.5.2024 18:51
Allt um enn eitt eldgosið og sjóðandi hiti á Hlíðarenda Eldgosið í Sundhnúksgíg verður fyrirferðamikið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar og reynslubolti þegar kemur að eldgosum, hefur verið á gosstöðvunum í allan dag og er enn. Innlent 29.5.2024 18:21
Strætó kveður Hlemm í bili Leiðakerfi Strætó mun taka miklum breytingum á sunnudaginn vegna framkvæmda Reykjavíkurborgar við Hlemm. Allur akstur Strætó um svæðið mun víkja tímabundið og nýjar endastöðvar verða teknar í notkun. Innlent 29.5.2024 17:17
Ríkisútvarpið í klemmu vegna kröfugerðar Krafa níu af tólf forsetaframbjóðendum hafa sett Ríkisútvarpið í klemmu. Stofnunin hefur sent frambjóðendunum bréf þar sem reynt er að milda þeirra grama geð. Innlent 29.5.2024 16:36
Níu krefjast þess að vera öll saman í sjónvarpsþætti Níu forsetaframbjóðendur, allir að frátöldum Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir, hafa ritað opið bréf til útvarpsstjóra og stjórnar þar sem krefjast þess að allir frambjóðendur komi saman í einum og sama þættinum degi fyrir kosningar. Innlent 29.5.2024 15:32
„Það mesta sem við höfum séð í þessum gosum hingað til“ Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir hraunflæðið vera um 1.500 til 2.000 rúmmetrar á sekúndu, það mesta í eldgosunum á Reykjanesskaga hingað til. Á einum og hálfum tíma sé hraunið orðið um 5 til 5,5 ferkílómetrar. Innlent 29.5.2024 14:52
Lífsskráin geti auðveldað aðstandendum að taka erfiðar ákvarðanir Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar - félags um dánaraðstoð, segir það ákaflega jákvætt að koma eigi upp svokallaðri Lífsskrá. Þar mun fólk geta skráð niður vilja sinn um takmarkaða meðferð við lífslok geti það ekki tekið ákvörðun sjálft. Ingrid ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 29.5.2024 14:29
Óvissa um hvalveiðar í sumar en ráðgjöf Hafró óbreytt Hafrannsóknarstofnun hyggst skila inn umsögn til matvælaráðuneytisins um hvalveiðar í dag. Gildandi ráðgjöf stofnunarinnar til ársins 2025 miðast við veiðar á um 160 langreyðum að hámarki á ári og helst sú ráðgjöf óbreytt. Vinna við nýja talningu dýra hefst eftir helgi. Innlent 29.5.2024 13:31
Menningarelítan klofin og tekst á um ... elítur Baráttan um Bessastaði hefur harðnað svo um munar á síðustu dögum. Einkum eru það andstæðingar Katrínar Jakobsdóttur sem ekki mega til þess hugsa að hún hoppi eins auðveldlega og skoðanakannanir gefa til kynna úr stóli forsætisráðherra yfir í að verða sjálfur forseti Íslands. Innlent 29.5.2024 13:21
Dómur í máli Kolbeins á mánudag Dómur verður kveðinn upp í máli knattspyrnumannsins Kolbeins Sigþórssonar í Héraðsdómi Reykjaness á mánudag. Hann er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Innlent 29.5.2024 12:44
Mótmæla harðlega fyrirætlun Isavia um gjaldtöku við flugvöllinn Byggðaráð Múlaþings mótmælir harðlega fyrirhugaða gjaldtöku á bílastæðum við Egilsstaðarflugvöll og lýsir óánægju með vinnubrögð Isavia í málinu. Innlent 29.5.2024 12:24
Fyrstu atkvæðin komin til flokkunar í Ráðhúsinu Flokkun á um tuttugu og fimm þúsund utankjörfundaratkvæðum eftir kjördeildum hófst í Ráðhúsinu í Reykjavík í morgun að viðstöddum umboðsmönnum frambjóðenda. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir um sjö hundruð manns koma að kosningunum í borginni. Innlent 29.5.2024 12:20
Mikilvægt að Grindvíkingar láti vita af sér Almannavarnir vilja að Grindvíkingar sem eru búsettir í Grindavík eða voru í bænum þegar rýming átti sér stað láti vita hvar þau eru. Innlent 29.5.2024 12:15
Átta hundruð manns í Bláa lóninu Á milli sjö og átta hundruð manns voru í Bláa lóninu þegar það var rýmt upp úr klukkan ellefu. Viðvörunartónar hljómuðu í lóninu, Grindavík og við HS Orku. Innlent 29.5.2024 11:39
Gos líklegt innan stundar og Grindavík rýmd Í hádegisfréttum þennan daginn verður sjónum að sjálfsögðu helst beint út á Reykjanes. Innlent 29.5.2024 11:36
Halla les fólk eins og opna bók Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi hefur þann hæfileika að geta, nánast bara við að hitta manneskju, lesið hennar kosti og galla á augabragði. Innlent 29.5.2024 11:30
Allar gosmyndavélarnar á einum stað Hér að neðan má sjá vefmyndavélar frá svæðinu kringum Sundhnúksgígaröðina. Gos hófst í henni klukkan 12:46 í dag. Innlent 29.5.2024 11:29
Vaktin: Eldgos er hafið Eldgos hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík klukkan 12:46 í dag. Innlent 29.5.2024 11:02
Nú er hægt að fara í kynsjúkdómapróf án þess að tala við neinn Nýtt kerfi hefur verið tekið í gagnið á göngudeild húð- og kynsjúkdóma Landspítalans sem gerir fólki kleift að undirgangast kynsjúkdómapróf, án þess að tala við einn einasta heilbrigðisstarfsmann. Innlent 29.5.2024 10:13
Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi Á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra eru 227 verkbeiðnir um þvingaðan brottflutning einstaklinga. Þar af er verið að afla ferðaskilríkja fyrir 58 einstaklinga. Síðustu tólf mánuði hafa alls 188 einstaklingar verið fluttir á brott í þvinguðum flutningi til margra ólíkra landa. Innlent 29.5.2024 06:46
Líkir Katrínu við „stalínista“ og skýtur á Vilhjálm Birgisson „Hvað mig varðar er það algerlega vonlaus staða fyrir lýðveldið Ísland að fá þessa konu á Bessastaði. Mér líst ekki á blikuna,“ segir Kristján Loftsson, eigandi Hvals, um Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, Innlent 29.5.2024 06:32
Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Ný göng undir Arnarneshæð, sem eiga að stórbæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, voru formlega tekin í gagnið í dag. Innlent 28.5.2024 22:51
Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Baldur Þórhallsson segist hafa verið hvattur til að bjóða sig ekki fram til embættis forseta Íslands vegna mögulegs framboðs Katrínar Jakobsdóttur. Þessi hvatning hafi komið úr herbúðum sjálfrar Katrínar. Innlent 28.5.2024 22:50
Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Aðalfundi félagsins Menningartengsl Íslands og Rússlands, sem átti að fara fram í dag, var frestað eftir að til stimpinga kom við húsnæði félagsins og lögregla var kölluð til. Innlent 28.5.2024 21:51